Einn milljarður húsnæðisbóta ónýttur Jón Hákon Halldórsson skrifar 16. október 2017 06:00 Í leigumarkaðskönnun hagdeildar Íbúðalánasjóðs, sem gerð var í ágúst og september, kemur í ljós að húsnæðisbætur eru að meðaltali 31 prósent af leiguverði. vísir/anton brink
Aðeins um 42% leigjenda nýta sér rétt sinn til húsnæðisbóta. Ný könnun Íbúðalánasjóðs sýnir að umtalsvert fleiri eiga rétt á bótum en nýta sér þær. Á tímabilinu frá janúar til september í ár voru fjórir milljarðar greiddir í húsnæðisbætur og miðað við óbreytt umsóknarhlutfall þá verða greiddir út 5,3 milljarðar í slíkar bætur á árinu öllu. Eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Íbúðalánasjóði var gert ráð fyrir 6,4 milljörðum í húsnæðisbætur á fjárlögum ríkisins í ár. Það er 1,1 milljarður, sem gert hafði verið ráð fyrir að rynni til fólks á leigumarkaði, sem verður eftir í ríkiskassanum í lok árs. Í leigumarkaðskönnun hagdeildar Íbúðalánasjóðs, sem gerð var í ágúst og september, kemur í ljós að húsnæðisbætur eru að meðaltali 31% af leiguverði. Því er ljóst að um nokkra búbót gæti verið að ræða fyrir marga einstaklinga og fjölskyldur á leigumarkaði. Að meðaltali greiða leigjendur um 41% tekna sinna í húsaleigu og sumir mun meira. Ítarlegar niðurstöður úr könnuninni verða kynntar á húsnæðisþingi sem fram fer í dag. Þá hefur verið tilkynnt að útgreiðsla húsnæðisbóta muni færast til Íbúðalánasjóðs frá Vinnumálastofnun og mun sjóðurinn í kjölfarið ráðast í sérstakt átak til að fræða leigjendur og leigusala um húsnæðisbætur og þannig reyna að auka útgreiðslur til fólks á leigumarkaði. Vegna þessarar tilfærslu munu nokkrir starfsmenn Vinnumálastofnunar flytjast til Íbúðalánasjóðs.
Birtist í Fréttablaðinu Húsnæðismál Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira