Viðkvæmum myndum af einni bestu handboltakonu heims dreift á netinu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. nóvember 2017 13:00 Nora Mørk er ein besta handboltakona í heimi. vísir/getty
Óprúttinn aðili braust inn í síma Noru Mørk, einnar bestu handboltakonu í heimi, í haust og stal þaðan persónulegum myndum og dreifði á veraldarvefnum. Mørk, sem hefur verið í lykilhlutverki í sigursælu norsku landsliði undanfarin ár, ræddi þetta mál við TV2 í gær.Mørk var bæði markadrottning á Ólympíuleikunum og EM 2016.vísir/getty„Líf mitt hefur breyst. Ég er ekki lengur alltaf glöð og sjálfstraustið er minna. Hver einasti dagur hefur verið erfiður. Það er erfitt að standa í þessu. Ég held að fólk sem gerir svona lagað skilji ekki hvaða áhrif þetta hefur á mann,“ sagði Mørk. Mørk var með norska landsliðinu þegar hún komst að því að myndirnar væru komnar í dreifingu á netinu. Í viðtalinu við TV2 segist hún nánast hafa lamast er hún fékk þessar hræðilegu fréttir. Mørk segir að það séu þrjár ástæður fyrir því að hún ákvað að ræða opinberlega um þessa skelfilegu reynslu. „Þetta eru þrjár ástæður. Til að ná aftur valdi yfir mínu lífi, út af því ég er sár og reið og fyrir allar þær sem hafa lent í þessu sama,“ sagði Mørk. Hún íhugaði að gefa ekki kost á sér fyrir heimsmeistaramótið í Þýskalandi. Mørk verður hins vegar með á HM þar sem Noregur á titil að verja. Mørk, sem er 26 ára, hefur leikið undir stjórn Þóris Hergeirssonar í norska landsliðinu síðan 2010. Hún hefur einu sinni orðið heimsmeistari og þrisvar sinnum Evrópumeistari. Þá var hún í bronsliði Noregs á Ólympíuleikunum 2016.Viðtalið má sjá á vef TV2 með því að smella hér.
Handbolti Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Fleiri fréttir Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Sjá meira