Einn besti körfuboltamaður landsins í mínus í framlagi í leikjunum tveimur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. nóvember 2017 15:15 Haukur Helgi Pálsson. Vísir/Getty
Íslenska körfuboltalandsliðið tapaði tveimur fyrstu leikjum sínum í undankeppni HM 2019, fyrst úti á móti Tékkum og svo naumlega á móti Búlgörum í gærkvöldi. Íslenska liðið var án lykilmanna eins og Jóns Arnórs Stefánssonar og Harðar Axels Vilhjálmssonar í leikjunum og svo var það frammistaða Hauks Helga Pálssonar í þessum tveimur leikjum. Einn besti körfuboltamaður landsins náði sér engan vegin á strik í þessum tveimur tapleikjum og munaði heldur betur um það. Haukur harkaði að sér og spilaði í gegnum meiðslin. Hann er lykilmaður í liði sem var án lykilmanna en hversu mikið hjálpaði hann liðinu? Það fór ekkert framhjá neinum að Haukur Helgi var að spila meiddur og hægt að setja stórt spurningarmerki við það af hverju þjálfararnir létu hann spila svona mikið þegar ljóst var að hann var ekki að ná sér að strik. Þegar upp var staðið frá þessum tveimur leikjum þá hafði Haukur Helgi aðeins nýtt 1 af 15 skotum sínum í leikjunum sem gerir aðeins tæplega sjö prósent skotnýtingu. Hann tapaði auk þess átta boltum þar af sjö þeirra í þriggja stiga tapi á móti Búlgörum í gær. Haukur Helgi klikkaði á öllum sjö tveggja stiga skotum sínum í leikjunum tveimur og sex af níu stigum hans komu af vítalínunni. Haukur var með samtals 9 stig, 6 fráköst og 4 stoðsendingar á 64 mínútum í þessum tveimur leikjum og heildarframlag hans var -1. Íslenska liðið tapaði með 31 stigi þær mínútur sem hann spilaði en vann með sjö stigum þegar hann sat á bekknum. Haukur Helgi var því bæði í mínus í framlagi sem og í plús og mínus sem er útreikningur á gengi liðsins þegar leikmaður er inn á vellinum.Frammistaða Hauks Helga Pálssonar í leikjunum við Tékkland og Búlgaríu:69-89 tap á móti Tékklandi: 0 stig, , 3 fráköst, 1 stoðsending, 1 tapaður, hitti úr 0 af 8 skotum, -3 í framlagi74-77 tap á móti Búlgaríu: 9 stig, 3 fráköst, 3 stoðsendingar, 7 tapaðir, hitti úr 1 af 7 skotum, 2 í framlagi
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn „Það hlaut að koma að því“ Íslenski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira