Innlent

Mætti leikara með typpið úti í búningsklefanum: „Við höfum sjö mínútur“

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Leikkonan Sara Martí Guðmundsdóttir hefur sagt frá kynferðisflegri áreitni í leikhúsinu.
Leikkonan Sara Martí Guðmundsdóttir hefur sagt frá kynferðisflegri áreitni í leikhúsinu. Vísir/Anton

Leikkonan Sara Martí Guðmundsdóttir, er ein þeirra kvenna innan sviðlista og kvikmyndagerðar á Íslandi, sem stigið hefur fram og greint frá kynferðislegri áreitni eða ofbeldi í geiranum. Hún segir að þjóðþekktur leikari hafi káfað á henni í miðri sýningu og birst nakinn í búningsklefa hennar.

548 konur innan sviðlista og kvikmyndagerðar hafa skrifað undir yfirlýsingu þar sem þess er krafist að tekið verði á kynferðisofbeldi, áreitni og kynbundin mismunun í sviðlista- og kvikmyndageiranum. Hafa þær gert 62 sögur um slíkt opinberar.

Sara Martí sagði sögu sína í Kastljósinu á RÚV í kvöld. Þar greindi hún frá því að þegar hún var nýútskrifuð úr leiklistarskóla hafi hún fengið hlutverk í barnasýningu í stóru leikhhúsi.

Þar hafi leikari einn tekið vel á móti henni, sýnt henni leikhúsið og kynnt hana fyrir starfsfólkinu.

Svo gerist það að þegar við frumsýnum byrja alls konar skrýtnir hlutir að gerast á miðjum sýningum. Við erum kannski í hópsenu fyrir framan heilan sal af fólki þar sem ég finn fyrir einhverju káfi á rassinum á mér og maður er ekkert í neinni aðstöðu til að gera eitt né neitt í svoleiðis aðstæðum,“ sagði Sara Martí.

Nokkrum sýningum síðar hafi leikarinn þó fært sinn enn frekar upp á skaftið en þegar Sara Martí fór inn í búningsklefa sinn til þess að skipta búning beið leikarinn hennar þar inni.

„Þar er þessi, að ég hélt vinur minn, inn á búningsherberginu mínu, búinn að klæða sig úr með typpið úti og segir: „Við höfum sjö mínútur““.

Sagði Sara Martí að við þetta hafi hún lamast og orðið mjög hrædd, enda hafi sýningin enn verið í gangi. Til þess að losna undan leikaranum hafi hún sagt við leikarinn að einhver gæti hafa séð hann fara inn. Því næst hafi hún gripið búninginn sem hún þurfti á að halda og farið út.

Hún sagðist ekki hafa sagt neinum frá þessu, fyrr en nú, af ótta við viðbrögðin, þá hafi hún ekki viljað taka slaginn gegn þessum þekkta og vinsæla leikara.

„Ég gat ekki sagt, að mér fannst, neinum frá þessu. Ég var bara nýútskrifuð, búin að vinna þarna í kortér. Hann var vinsælasti maðurinn á svæðinu, með rosalega háan status og ótrúlega vel liðinn. Mér fannst ég ekkert hafa í hann og að ég yrði bara stimpluð sem erfiða, vesenis nýja leikkonan.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×