Tröllin Ūgh og Bõögâr sitja föst í Kærleikskúlunni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. desember 2017 11:45 Listamaðurinn Egill Sæbjörnsson sem hannaði Kærleikskúluna í ár.
Kærleikskúla ársins var afhent á Kjarvalsstöðum í morgun en handhafi hennar í ár er Mannréttindskrifstofa Reykjavíkurborgar. Listamaðurinn Egill Sæbjörnsson hannar Kærleikskúluna að þessu sinni í samvinnu við ímyndaða vini sína, tröllin Ūgh og Bõögâr. Í tilkynningu frá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra sem gefa Kærleikskúluna út kemur fram að þetta sé í fimmtánda sinn sem kúlan er gefin út þar sem fyrsta Kærleikskúlan leit dagsins ljós árið 2003. Allur ágóði af sölunni rennur til sumar- og helgarbúða fyrir fötluð börn og ungmenni í Reykjadal. Um aðkomu tröllanna að hönnun kúlunnar segir Egill að þau hafi verið mjög áhugasöm um að aðstoða hann. Tröllin hafi helst viljað gera kúlurnar sjálf.Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar, og Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar, þegar Kærleikskúlan var afhent í morgun.vísir/stefán„Þeir sögðu að þeir væru miklu betri í þessu en ég. Þeir urðu æstir og rifust síðan svo mikið um hvað ætti að vera á kúlunum að þeir festust inn í þeim,“ er haft eftir Agli í tilkynningu. Hann segir að það sé best að fara varlega með kúlurnar og passa að þær brotni ekki. „Þá gætu þessi gráðugu tröll sloppið út og kannski eyðilagt jólin fyrir manni.“ Egill var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum í ár en eins og einvherjir muna eflaust voru tröllin Ūgh og Bõögâr þar í aðalhlutverki. Handahafi Kærleikskúlunnar fær hana í viðurkenningarskyni fyrir störf í þágu fatlaðs fólks. Eins og áður segir hefur stjórn Styrktarfélagsins ákveðið að veita Mannréttindaskrifstofu Reykjavíkurborgar kúluna í ár. Er það gert vegna samkomulags sem skrifstofan gerði við Landssamtökin Þroskahjálp vegna notendaráðs fatlaðs fólks. „Það er mat stjórnarinnar að Mannréttindaskrifstofan hafi með samningnum sýnt mikilsverðan skilning og vilja til þess að tryggja að raddir fólks með þroskahömlun heyrist og að það fái þannig raunverulegt tækifæri til að taka þátt í að móta samfélagið,“ segir í tilkynningu Styrktarfélagsins.
Jól Mest lesið Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið 50+: Hræðslan við að eldast útlitslega og góð ráð Áskorun Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Lífið Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Lífið Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Lífið Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Lífið Fleiri fréttir Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira