„Það sem fólk verður að gera sér grein fyrir er að hann var einstaklega óundirbúinn til að taka þetta að sér,“ segir Nacny Pelosi, leiðtogi Demókrata í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, í samtali við blaðamennina.
Niðurstaða blaðamanna New York Times virðist vera að forsetinn líti á sig sem utanveltumann sem háir daglega baráttu í tilraun til að verða tekinn alvarlega, fremur valdamesti maður heims.
Vaknar hálf sex og kveikir á sjónvarpinu
Á hefðbundnum degi vaknar Trump um klukkan hálf sex og kveikir á CNN í sjónvarpinu í svefnherbergi sínu í Hvíta húsinu. Hann horfir svo á Fox & Friends á uppáhaldssjónvarpsstöð sinni, Fox News. Stundum horfir hann einnig á þáttinn Morning Joe á MSNBC.
Að loknu eða á meðan á sjónvarpsáhorfi stendur fer hann í símann sinn og stundum er hann búinn að birta fyrstu Twitter-færslu sína áður en hann er kominn fram úr rúminu.
Í greininni kemur fram að áður en Trump tók við embætti forseta á hann að hafa sagt við samstarfsmenn sína að hver dagur í Hvíta húsinu eigi að vera eins og þáttur í sjónvarpsþáttaröð þar sem hann reynir að hafa betur gegn andstæðingum sínum.

Nánir samstarfsmenn forsetans segja hann verja að minnsta kosti fjórum tímum fyrir framan sjónvarpið á hverjum degi, stundum allt að átta tímum. Þá innbyrðir hann oft á annan tug dósa af „diet kóki“ yfir daginn. Hann fylgist vel með orðræðunni á stærstu sjónvarpsstöðvunum og þróun rannsóknar saksóknarans Robert Mueller á afskiptum Rússa af bandarísku forsetakosningunum á síðasta ári.
Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður Repúblikana fyrir Suður-Karólínu og vinur Trump, segir forsetann sannfærðan um að markmið vinstrimanna og fjölmiðla sé að fá hann til að hrökklast úr embætti.
Reynir að draga úr Twitter-notkun forsetans
John Kelly, starfsmannastjóri Hvíta hússins, hefur reynt að stytta þann tíma sem forsetinn hefur til að gera það sem hann sjálfur vill. Þá hefur hann sömuleiðis reynt að draga úr Twitter-notkun forsetans. Þetta hefur hann gert með því að fá vinnudag forsetans til að byrja fyrr. Markmiðið sé að Trump sé mættur á skrifstofuna milli níu og hálf tíu. Á skrifstofunni bíða samstarfsmenn sem hafa fylgst vel með Fox and Friends til að vera reiðubúnir því sem koma skal þegar forsetinn mætir.

Hrópaði á þingmenn
Forsetanum er lýst sem manni sem hafi ekki gert sér greint fyrir hvað fælist í og erfiðleikastigi starfsins. Times segir frá því á fyrstu mánuðum sínum í starfi á hann að hafa hrópað skipanir til öldungadeildarþingmanna. „Ég starfa ekki í þínu umboði,“ á Bob Corker, þingmaður Repúblikana, að hafa hrópað til baka.
„Stóra vandamálið, það sem fólk verður að skilja, er að hann var einstaklega óundirbúinn fyrir þetta. Það er eins og að þú eða ég myndi fara inn í herbergi og verða beðið um að framkvæma heilaskurðaðgerð. Þegar þig skortir svo mikla þekkingu, þá getur það verið ruglingslegt,“ segir Pelosi í samtali við blaðið.
Sefur fimm eða sex tíma
Um helgar spilar forsetinn oft golf, en á virkum kvöldum á forsetinn það til að bjóða gestum í kvöldmat, oft milli klukkan hálf sjö og sjö.
Að því loknu er kominn háttatími hjá forsetanum. Sefur hann í fimm eða sex tíma áður en kveikt er á sjónvarpinu og gripið er í símann á nýjan leik.
Hér má lesa grein New York Times í heild sinni.