Tíu leikir voru spilaðir í NBA- deildinni í nótt. Vandræði L.A. Lakers héldu áfram þegar að liðið tapaði á heimavelli gegn Charlotte Hornets, 108-94.
Var þetta níundi tapleikur Lakers í röð sem situr á botni vesturdeildar NBA með aðeins 11 unna leiki af 38 spiluðum.
Stuðningsmenn Lakers púuðu á liðið þegar það gekk af velli og hafa þeir greinilega fengið nóg af spilamennsku liðsins á tímabilinu. Þeir gátu hins vegar fagnað endurkomu Lonzo Ball, sem spilaði nokkrar mínútur í fyrsta leik sínum fyrir liðið síðan 23. desember. Hafði hann fyrir leikinn í nótt misst af sex leikjum vegna axlarmeiðsla.
Hornets hafa unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum, þar á meðal unnu þeir óvæntan sigur á meisturum Golden State Warriors fyrr í vikunni.
Efsta lið austurdeildar, Boston Celtics, vann torsóttan sigur á heimavelli gegn Minnesota Timberwolves, 91-84. Lið Celtics hitti aðeins úr 38 af 94 skotum sínum í nótt, þar af úr 6 af 36 þriggja stiga skotum.
Það kom hins vegar ekki að sök og skóp frábær varnarleikur þeirra sigurinn. Marcus Smart kom af bekknum og var stigahæstur í liði Celtics með 18 stig.
Miðherjinn stæðilegi, Karl-Anthony Towns fór hins vegar fyrir gestunum frá Minnesota, skoraði 25 stig og tók 23 fráköst sem er persónulegt met hjá honum.
Öll úrslit:
L.A. Lakers - Charlotte Hornets: 94-108
Boston Celtics - Minnesota Timbervolwes: 91-84
Philadelphia 76ers - Detroit Pistons: 114-78
Miami Heat - New York Knicks: 107-103 (Framlengdur leikur)
Milwaukee Bucks - Toronto Raptors: 110-129
Dallas Mavericks - Chicago Bulls: 124-127
San Antonio Spurs - Phoenix Suns: 103-89
Denver Nuggets - Utah Jazz: 99-91
Memphis Grizzlies - Washington Wizards: 100-102
Portland Trailblaizers - Atlanta Hawks: 110-89
Ekkert gengur hjá Lakers
Magnús Ellert Bjarnason skrifar
