Réðust á dyraverði í miðborginni Atli Ísleifsson skrifar 6. janúar 2018 07:32 Lögreglan hafði nóg að gera í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Eyþór
Ráðist var á tvo dyraverði í miðborg Reykjavíkur í nótt. Skömmu eftir miðnætti var lögreglu tilkynnt að dyraverðir á skemmtistað væru með mann í tökum eftir að sá veittist að þeim. Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi verið mjög ölvaður og ekkert hægt að ræða við hann. Hann neitaði að svara hvar hann ætti heima og var hann því vistaður í fangageymslu. Um 1:30 var dyravörður á skemmtistað í miðborginni sleginn í andlitið og sparkað í hann þannig að lítillega blæddi úr andliti. Í dagbók lögreglu segir að árásarmennirnir hafi verið farnir af vettvangi þegar lögreglu bar að garði og er málið í rannsókn. Klukkan korter í eitt var tilkynnt um líkamsárás í heimahúsi í Vesturbæ Reykjavíkur. Þar var karlmaður handtekinn og hann vistaður í fangageymslu. Árásarþoli ku ekki vera alvarlega meiddur. Skömmu fyrir miðnætti var tilkynnt um eld í ruslagámi í austurbænum. Slökkvilið kom á vettvang og slökkti eldinn. Lögregla handtók mann um þrjúleytið eftir að hann hafði verið að áreita fólk. Dyraverðir héldu manninum niðri þegar lögregla kom á staðinn og brást maðurinn illa við afskiptum hennar svo setja þurfti manninn í handjárn og flytja á lögreglustöð. Hann var vistaður í fangageymslu. Á sjötta tímanum var karlmaður handtekinn fyrir að kasta af sér vatni á húsnæði Héraðsdóms Reykjavíkur. Hann var fluttur á lögreglustöðina við Hverfisgötu þar sem málið var afgreitt og viðkomandi var síðan látinn laus.
Lög og regla Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Erlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Fleiri fréttir Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sjá meira