Neitaði að fara í lyfjapróf og fékk fjögurra ára bann

Dómstóll ÍSÍ kvað upp dóm í málinu á föstudag en áður hefur komið fram í umfjöllun um mótið að tveir efstu keppendur í karlaflokki, Hinrik Ingi Óskarsson og Bergur, hafi neitað að fara í lyfjapróf.
Crossfitsamband Íslands svipti þá báða verðlaunum sínum samdægurs.
Bergur skrifaði undir yfirlýsingu þess efnis að hann neitaði að fara í lyfjapróf. Hann viðurkenndi að hann væri á Concerta og bar við að hann væri í prófum í skóla.
Sjá einnig: Íslandsmótið í CrossFit: Neitaði að fara í lyfjapróf, hótaði starfsmönnum en sæmdur gullverðlaunum
Bergur gaf vitnisburð fyrir dómstólnum og sagði að mikill æsingur hefði verið á keppnisstað, „enda hafi félagi hans þá nýverið hafnað að gefa sýni. Hann hafi fetað í fótspor hans og talið sig vera í fullum rétti,“ segir í dóminum.
Meðal þess sem Bergur hélt fram fyrir dómi var að ekki væri heimilt að boða hann í lyfjapróf á móti í Crossfit, enda ekki haldið á vegum sambandsaðila ÍSÍ. Ekki var fallist á þau rök enda lyfjaeftirliti ÍSÍ heimilt að taka íþróttamenn í lyfjapróf, hvar og hvenær sem er.
Var hann því dæmdur í fjögurra ára keppnisbann, sem fyrr segir.
Máli Bergs var vísað frá dómstóli ÍSÍ þann 12. apríl á síðasta ári þar sem að Bergur hélt því fram að hann hafi ekki verið skráður í aðildarfélag ÍSÍ þegar mótið fór fram. Ný gögn voru hins vegar lögð fram um að Bergur hafi verið skráður í aðildarfélag ÍSÍ (Lyftingafélag Reykjavíkur) á þeim tíma og kæran lögð fram á ný.
Hinrik Ingi fékk hins vegar sínu máli vísað frá dómstóli ÍSÍ þar sem ekki þótti sannað að hann hafi verið félagi í aðildarsambandi ÍSÍ þegar áðurnefnt mót fór fram.
Tengdar fréttir

Enginn virðist hafa verið leiddur í lyfjaprófsgildru á CrossFit-mótinu
Verkefnastjóri Lyfjaeftirlits ÍSÍ segir lyfjaprófun á Íslandsmótinu í CrossFit hafa verið samkvæmt bókinni.

Hinrik Ingi: Ég er til í að fara í lyfjapróf
"Ég hef ekkert að fela. Ég fór ekki í lyfjaprófið því mér fannst vera brotið á mér. Mér fannst þetta vera ófagmannlega gert og asnalegt,“ segir Hinrik Ingi Óskarsson sem í gær varð Íslandsmeistari í CrossFit en síðan sviptur gullverðlaunum og settur í tveggja ára bann af því hann neitaði að fara í lyfjapróf.

Íslandsmótið í CrossFit: Neitaði að fara í lyfjapróf, hótaði starfsmönnum en sæmdur gullverðlaunum
Hinrik Ingi Óskarsson bar sigur úr býtum á Íslandsmeistaramótinu í Crossfit í dag. Óvíst er hvort hann haldi titlinum.

Formaður stjórnar CrossFit-sambandsins: Ekki óheppileg uppákoma fyrir okkur
Guðrún Linda Pétursdóttir, formaður stjórnar CrossFit-sambands Íslands, segist ekki orðið vitni að því þegar Hinrik Ingi Óskarsson hótaði starfsmönnum lyfjaeftirlits Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) barsmíðum eftir Íslandsmeistaramótið í CrossFit í Digranesinu í gær.

Við viljum að CrossFit sé hrein íþrótt á Íslandi
Guðrún Linda Pétursdóttir, formaður stjórnar CrossFit-sambands Íslands og mótsstjóri á Íslandsmótinu, var í viðtali í Brennslunni á FM957 í morgun.

Kærður til lögreglu og gat ekki sótt mikla peninga til Dúbaí
"Þetta var ákveðinn skellur, ofan á allt hitt,“ segir Hinrik Ingi Óskarsson.

Dómstóll ÍSÍ vísaði máli Hinriks Inga frá: Taldist ekki sannað að hann væri innan ÍSÍ
Hinrik Ingi baðst afsökunar á því að hafa valdið ótta á meðal lyfjaeftirlitsmanna á Íslandsmeistaramótinu í Crossfit.

Úrslit Íslandsmótsins í CrossFit uppfærð
Eins og fram kom á Vísi voru Hinrik Ingi Óskarsson og Bergur Sverrisson, sem lentu í 1. og 2. sæti á Íslandsmótinu í CrossFit, sviptir verðlaunum sínum eftir að þeir neituðu að gangast undir lyfjapróf að mótinu loknu. Þeir voru einnig dæmdir í tveggja ára bann frá CrossFit á Íslandi.

Óvænt bréf setur dómstól ÍSÍ í erfiða stöðu í umtöluðu lyfjamáli
Lyfjaeftirlitið hefur til skoðunar mál Hinriks Inga Óskarssonar sem neitaði að gangast undir lyfjapróf á Íslandsmeistaramótinu í Crossfit í desember.