Margt þarf að ganga upp svo Arsenal fái Aubameyang Henry Birgir Gunnarsson skrifar 30. janúar 2018 08:00 Ha? Af hverju þarf þetta að vera svona flókið gæti Aubameyang verið að hugsa. vísir/getty
Það er aldrei neitt auðvelt hjá Arsenal og ef félagið ætlar sér að fá Pierre-Emerick Aubameyang þá þurfa tvö önnur félagaskipti sömuleiðis að ganga í gegn. Í raun gæti það verið framherji liðsins, Olivier Giroud, sem ræður mestu þegar upp er staðið. Arsenal hefur náð saman við Dortmund um kaupverð á Aubameyang en leikmaðurinn fær ekki að fara nema þýska liðið fái annan framherja. Arsenal ætlaði sér að senda Giroud til Dortmund í staðinn en Frakkinn neitar að fara og vill frekar vera áfram í London. Chelsea hefur áhuga á að kaupa hann. Ef Chelsea fær Giroud þá gæti félagið bjargað þessari hringekju með því að senda Michy Batshuayi til Dortmund en hann er alveg opinn fyrir því. Þessi þrjú lið þurfa því að vinna saman næsta eina og hálfa sólarhringinn ef þetta á allt saman að ganga upp. Spurningamerkið stóra er eins og áður segir Giroud. Arsenal vill fá allt upp í 35 milljónir punda fyrir hann og sú upphæð gæti staðið í Chelsea. Svo mikið að félagið er að skoða að senda Batshuayi til Tottenham í skiptum fyrir Fernando Llorente. Þá situr Arsenal uppi með Giroud og fær ekki Aubameyang. Það verður áhugavert að fylgjast með framvindu þessa máls á næstu klukkutímum.
Enski boltinn Tengdar fréttir Dortmund samþykkir 55,4 milljóna punda tilboð Arsenal í Aubameyang Telegraph hefur fengið það staðfest að Arsenal sé búið að ná samkomulagi við Borussia Dortmund um kaupin á Pierre-Emerick Aubameyang. 29. janúar 2018 11:15 Mest lesið Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Flottur sigur Íslendingaliðsins í fyrsta leik Fótbolti Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Enski boltinn Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Sport Spennan meiri í kvennaflokki fyrir lokahringinn Golf Tap og Hlín fer í Evrópubikarinn Fótbolti Fleiri fréttir Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Liverpool fær miðvörð Barcelona á láni Coventry keypti leikmann af mótherjum Valsmanna Vildi ekki selja fyrirliðann og lofar að styrkja liðið í staðinn Arteta segir að leikmenn Arsenal hafi verið „brjálaðir“ eftir tapið Segir að nýi maðurinn í brúnni hjá Newcastle sé „rokkstjarna“ NBA-goðsögn fjárfestir í enska fótboltafélaginu Ipswich Town Barcelona blandar sér í baráttuna um Rodri Sauð á leikmönnum Arsenal eftir tapið fyrir Betis Fann fyndna lausn á fljótfæru húðflúri sínu Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Sjá meira
Dortmund samþykkir 55,4 milljóna punda tilboð Arsenal í Aubameyang Telegraph hefur fengið það staðfest að Arsenal sé búið að ná samkomulagi við Borussia Dortmund um kaupin á Pierre-Emerick Aubameyang. 29. janúar 2018 11:15