Í gögnum sem nú þegar hafa verið lögð fram gegn honum fyrir þarlendum dómstólum er haft eftir Cruz að hann hafi náð að flýja af vettvangi eftir að hafa hleypt af vopnum sínum, sem hann skildi svo eftir á skólalóðinni.
Hann var dreginn fyrir dómara í gær en hann verður sóttur til saka fyrir öll morðin 17. Skotárásin sem hann stóð fyrir er sú mannskæðasta í bandarískum skóla síðan árið 2012.
Sjá einnig: „Trump! Vinsamlegast gerðu eitthvað!“
„Cruz segist vera byssumaðurinn sem fór inn á skólalóðina með AR-15 riffill og tók að skjóta á nemendur sem hann sá í og við skólabygginguna,“ segir meðal annars í gögnunum sem lögð voru fyrir dómara í gær.
Þar kemur jafnframt fram að Cruz hafi verið með fleiri skothylki sem hann geymdi í bakpoka og hliðartösku. Eftir skothríðina hafi hann kastað frá sér vopnunum með það fyrir augum að falla inn í mannfjöldann og reyna þannig að yfirgefa vettvanginn í allri ringulreiðinni sem skapaðist.
Hann er sagður hafa komist óséður af skólalóðinni og haldið rakleiðis í næstu Walmart-verslun þar sem hann faldi sig um stund. Því næst fór hann á McDonalds en um klukkustund eftir árásina náðu lögreglumenn að hafa hendur í hári hans.

Sjá einnig: Átjánda árásin í skólum í Bandaríkjunum frá áramótum
Bandaríska leyniþjónustun hefur að sama skapi viðurkennt að hafa fengið ábendingar um að Nikolas Cruz gæti verið líklegur til vandræða, ekki síst vegna samfélagsmiðlahegðunar hans.
Færslur hans á samfélagsmiðlum teikna upp mynd af ungum manni, fullum af hatri. Margar hverjar voru gegnumsýrðar af kynþáttahatri og átti hann það til að hreyta fúkyrðum í múslima og svart fólk. Í færslum sínum sagðist hann ætla að berjast gegn andfastistum og öllum þeim lögreglumönnum sem myndu standa í vegi hans.
Undir lok síðasta árs lýsti hann því fjálglega yfir að hann ætlaði sér að verða „atvinnuskotárásarmaður,“ eins og hann orðaði það. Þá hafði Cruz jafnframt bein tengsl við hópa hvítra þjóernissinna vestanhafs.
Ætlaði að skrópa á degi ástarinnar
Ef marka má fjölskylduna sem hýsti Cruz virðist ekkert hafa verið óeðlilegt við drenginn þegar hann vaknaði að morgni árásarinnar. Það eina óeðlilega var að hann neitaði að mæta í íþróttir í fyrsta tíma. „Það er valentínusardagurinn. Ég fer ekki í skólann á valentínusardaginn,“ hefur lögmaður fjölskyldunnar eftir honum í samtali við CNN. Þau hafi ekki gert neitt í málinu, skrifuðu þetta bara á unglingastæla og leyfðu honum að vera heima. Þau höfðu tekið Cruz að sér á síðasta ári eftir að móðir hans lést. Þau segja augljóst að hann hafi verið þunglyndur og þau hafi því gert allt sem í þeirra valdi stóð til að létta honum lífið. Þannig hafi þau yfirleitt keyrt hann í skólann og hjálpuðu honum að útvega sér vinnu.
Þau vissu að Cruz ættu byssu en segjast hafa sett skýrar reglur um notkun hennar. Hún ætti að vera í læstri kistu í herbergi hans öllum stundum. Cruz hafði þó engu að síður lykilinn að henni í fórum sínum.
„Fjölskyldan gerði það sem hún hélt að væri rétt í stöðunni. Þau tóku að sér brotið barn og reyndu að hjálpa því. Það þýðir ekki að hann hafi ekki mátt taka byssuna með sér inn á heimili þeirra. Þau læstu hana inni og trúðu því að það væru nægar ráðstafanir, að það yrði ekkert vandamál. Enginn sá að svona ódæðisverk væri í kortunum hjá þessu barni, að það gæti nokkurn tímann gert eitthvað þessu líkt,“ segir lögmaður fjölskyldunnar.