Tryggvi fær skráðan á sig landsleik þrátt fyrir að vera staddur í flugvél á sama tíma Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. febrúar 2018 13:30 Tryggvi Snær Hlinason. Vísir/Bára
Tryggvi Snær Hlinason var frábær í sigri Íslands á Tékklandi í undankeppni HM í körfubolta í gær. Miðherjinn frá Svartárkoti í Bárðardal sýndi og sannað mikilvægi sitt fyrir íslenska körfuboltalandsliðið. Tryggvi kom öflugur inn af bekknum og var með 15 stig, 8 fráköst og 3 varin skot á aðeins 21 mínútu. Ísland vann leikinn með einu stigi, 76-75. Tryggvi gat ekki spilað í fyrri leiknum í þessu landsleikjahléi þar sem að hann var þá staddur í flugvél á leiðinni frá Svíþjóð til Íslands.Tryggvi átti að koma til landsins í tíma fyrir leikinn á móti Finnlandi en óveðrið á föstudaginn sá til þess að flugi hans seinkaði. Eftirlitsmaður FIBA á leiknum var hinsvegar búinn að fara yfir og staðfesta leikskýrsluna þegar þetta kom í ljós. Tryggvi var því á skýrslu þótt að hann væri enn í háloftunum og í raun ekki staddur á landinu þegar leikurinn hófst. Íslenska liðið hafði aðeins ellefu leikmenn í leiknum. Trygggvi fær því skráðan á sig landsleik í Laugardalshöllinni á föstudagskvöldið en það verður landsleikur númer 26 hjá honum. Það hefur komið fyrir að leikmenn hafi fengið skráðan á sig landsleik þrátt fyrir að vera ekki í búning en þetta er örugglega fyrsti landsleikur Íslendings sem er ekki staddur í sama landi þegar leikurinn er flautaður á. Samkvæmt heimildum Vísis þá náði Tryggvi að lenda í Keflavík áður en þriðja leikhluta lauk. Hann var hinsvegar fastur út í vél á meðan veðrið gekk yfir og því tæknilega ekki kominn til landsins ennþá. Tryggvi ætti þó að hafa getað horft á leikinn í símanum. Félagar Tryggva náðu sem betur fer að landa sigrinum án hans á föstudaginn og nutu síðan góðs af því að fá hann ferskan inn í gær.
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira