Fjórir stigahæstu leikmenn Finna í sigrinum á Íslandi á Eurobasket verða ekki með í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. febrúar 2018 15:15 Lauri Markkanen í leiknum á móti Íslandi í september. Hér er Jón Arnór Stefánsson að reyna að stoppa hann. Vísir/EPA
Finnar mæta án sterkra leikmanna í leikinn á móti Íslandi í Laugardalshöll í kvöld en þjóðirnar mætast þá í undankeppni HM í körfubolta. Þjóðirnar mættust síðast á Eurobasket í Helsinki í september og þá unnu Finnar nauman fjögurra stiga sigur, 83-79. Fjórir stigahæstu leikmenn finnska liðsins í þeim leik og fimm af þeim sex stigahæstu eru ekki með í leiknum í kvöld. Alls eru því farin 65 af 83 stigum Finna úr þeim leik. Í íslenska liðið vantar aðeins sex stig frá leiknum fyrir tæpum sex mánuðum síðan. Stigahæstu Finnarnir úr síðasta leik þjóðanna voru þeir Lauri Markkanen (leikmaður Chicago Bulls í NBA), Sasu Salin (leikmaður Unicaja á Spáni), Petteri Koponen (leikmaður Barcelona á Spáni), Gerald Lee (leikmaður Maccabi Ashdod í Ísrael), Matti Nuutinen (leikmaður Pitesti í Rúmeníu) og Teemu Rannikko (leikmaður Kataja í Finnlandi). Matti Nuutinen er sá eini af þeim sem verður með í kvöld en í síðasta leik á móti Íslandi var hann með 7 stig og 3 fráköst á 13 mínútum. Hinir fimm léku samtals í 124 mínútur í leiknum af þeim 200 sem voru í boði í leiknum í september. Annar stigahæsti leikmaður finnska liðsins úr leiknum í september sem verður með í kvöld er Shawn Huff. Huff var með 5 stig, 7 fráköst og 4 stoðsendingar á 27 mínútum í sigrinum á Íslandi á Eurobaket. Mestu munar eflaust um fjarveru Lauri Markkanen sem skoraði 23 stig á 24 mínútum í leiknum á móti Íslandi en Finnarnir unnu með 14 stigum þegar hann var inná vellinum. Reynsluboltinn Petteri Koponen og Sasu Salin eru líka frábærir leikmenn með mikla reynslu og verður því sárt saknað. Báðir spila þeir á Spáni en spænsku lið þeirra leyfðu þeim ekki að taka þátt í þessum landsliðsverkefni.Sasu Salin.Vísir/EPA Stig Finna í 83-79 sigrinum á Íslandi 6. september síðastliðinn: Lauri Markkanen 23 (Ekki með í kvöld) Sasu Salin 17 (Ekki með í kvöld) Petteri Koponen 10 (Ekki með í kvöld) Gerald Lee 9 (Ekki með í kvöld) Matti Nuutinen 7 Teemu Rannikko 6 (Ekki með í kvöld) Shawn Huff 5 Tuukka Kotti 4 Carl Lindbom 2
Körfubolti Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Enski boltinn Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira