Ótrúlegur sigur Östersund á Emirates en Arsenal slapp með skrekkinn Anton Ingi Leifsson skrifar 22. febrúar 2018 21:45 Úr leiknum í kvöld. Vísir/Getty Sænska liðið Östersund gerði sér lítið fyrir og skellti stórliði Arsenal, 2-1, á Emirates í kvöld, en Arsenal sleppur með skrekkinn og fer áfram eftir að hafa unnið fyrir leikinn í Svíþjóð, 0-3. Fæstir áttu von á því að þetta myndi verða spennandi einvígi, en Arsenal stilltu upp nokkru sterku liði í kvöld. Gestirnir byrjuðu þó af krafti og Hosam Aiesh kom þeim yfir á 22. mínútu. Einungis mínútu síðar voru þeir aftur á ferðinni. Annað markið gerði Ken Sema og Östersund komið í 2-0. Þeir þurftu því einungis eitt mark til þess að skjóta leiknum í framlengingu. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur lesið yfir hausanótunum á sínum mönnum í hálfleik, en Sead Kolasinac minnkaði muninn á 47. mínútu eftir klaufaleg mistök í varnarlínu Östersund. Því var brekkan orðin brött fyrir Östersund, en þeir unnu þó 2-1 sigur á Emirates og geta verið stoltir af sinni frammistöðu í keppninni. Ótrúleg framganga þeirra þetta árið, en Arsenal er komið í 16-liða úrslitin. Evrópudeild UEFA
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn