Aníta komin heim af HM og ætlar að hjálpa ÍR-ingum um helgina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. mars 2018 16:30 Aníta Hinriksdóttir. Vísir/Anton
Tólfta bikarkeppni FRÍ innanhúss fer fram á laugardaginn en keppt verður mill 13.00 og 15.30 í Kaplakrika í Hafnarfirði. Aníta Hinriksdóttir er komin heim frá HM í Birmingham og velur aftur að keppa ekki í sinni bestu grein sem er 800 metra hlaup. Hún keppir í 1500 metra hlaupi eins og á HM. Það fylgir reyndar sögunni að engin íslensk kona hefur hlaupið 1500 metrana hraðar en Aníta. ÍR-ingar þurfa líka á hjálp að halda ef marka má úrslitin úr liðakeppni Meistaramótsins á dögunum en FH-ingar unnu þar sannfærandi sigur í samanlögðu og í kvennaflokki. Blikar fengu hinsvegar flest stig hjá körlunum en þar voru ÍR-ingar í þriðja sætinu. Frjálsíþróttasambandið fer yfir bikarkeppni helgarinnar í pistil á heimasíðu sinni en þar á bæ spá menn hörkukeppni og harðri baráttu. Hér fyrir neðan má sjá hvar mesta keppnin verður á laugardaginn. Keppni hefst á 60 m grindahlaupi kvenna og má búast við hörkukeppni milli Maríu Rúnar Gunnlaugsdóttur FH og Irmu Gunnarsdóttur Breiðabliki. Hulda Þorsteinsdóttir ÍR er skráð til leiks í stangarstökk kvenna og hún talin sigurstranglegust. Kristinn Torfason FH og Þorsteinn Ingvarsson ÍR munu berjast um sigurinn í þrístökki karla. Bjarki Rúnar Kristinsson Breiðabliki er hinsvegar í bætingaformi og verður mjög spennandi að sjá hvaða árangri hann mun ná. Búast má við jafnri og spennandi keppni í 60 m grindahlaupi karla. Þar er Ísak Óli Traustason UMSS sigurstranglegastur en hann bætti sinn besta árangur á MÍ í lok febrúar þegar hann hljóp á tímanum 8,26 sek. Einar Daði Lárusson ÍR er hinsvegar í mjög góðu formi þessa dagana og hefur hlaupið á 8,36 sek á tímabilinu. Erna Sóley Gunnarsdóttir ÍR hefur náð besta árangri keppenda í kúluvarpi en hún hefur varpað kúlunni 14,16 m í ár. Irma Gunnarsdóttir Breiðabliki er með næstbesta árangur keppenda, 13,22 m. Í 60 m hlaupi kvenna má búast við æsispennandi keppni en fjórar af sjö keppendum þar hafa hlaupið undir 8 sekúndum á tímabilinu. Tiana Ósk Whitworth ÍR er sigurstranglegust en hún á best 7,47 sek frá því á Stórmóti ÍR í lok janúar og er það núverandi Íslandsmet í greininni. Í 60 m hlaupi karla eru þeir Jóhann Björn Sigurbjörnsson UMSS og Dagur Andri Einarsson FH sigurstranglegastir en þeir hafa báðir hlaupið undir 7 sekúndum á þessu tímabili. Hlaupastjarnan Aníta Hinriksdóttir kepptir í 1500 m hlaupi fyrir ÍR-inga. Aníta setti glæsilegt nýtt Íslandsmet í greininni í síðasta mánuði og verður spennandi að sjá hvaða árangri hún nær í hlaupinu um helgina. Búast má við hörkuspennandi keppni í 1500 m hlaupi karla og er langt síðan svo margir góðir hlauparar keppa í sama hlaupinu. Trausti Þór Þorsteins Ármanni sem á besta árangur ársins í 800 m hlaupi er skráður til leiks og er gríðarlega spennandi að sjá hvaða árangri hann nær um helgina. Þá mun Íslandsmeistarinn í greininni Sæmundur Ólafsson ÍR einnig keppa í hlaupinu ásamt Íslandsmeistaranum frá því í fyrra, Bjartmari Örnusyni KFA. Fremsti millivegalengdahlaupari síðustu ára, Kristinn Þór Kristinsson HSK, er einnig skráður ásamt silfurverðlaunahafanum frá MÍ og RIG, Huga Harðarssyni Fjöleldingu, sem er í bætingaformi. Þá hleypur Þórarinn Örn Þrándarsson fyrir FH-inga en hann er að koma sterkur til baka eftir nokkurt hlé. Sjöþrautarkonan María Rún Gunnlaugsdóttir FH keppir í langstökki og á hún besta árangur keppenda, en hún hefur stokkið 5,91 á tímabilinu. Þær Birna Kristín Kristjánsdóttir Breiðabliki og Guðrún Heiða Bjarnadóttir HSK koma næstar á eftir henni, en þær hafa báðar stokkið 5,77 m á tímabilinu. Í hástökki karla er hinn ungi og efnilegi Kristján Viggó Sigfinnsson Ármanni sigurstranglegastur en hann hefur stokkið 2,01 m á tímabilinu. Óðinn Björn Þorsteinsson ÍR verður að teljast líklegur til sigurs í kúluvarpi karla en hann á best 20,22 m. Hlaupadrottningin Arna Stefanía Guðmundsdóttir FH er skráð til leiks í 400 m hlaupi kvenna og hefur verið ósigrandi á tímabilinu og Ívar Kristinn Jasonarson ÍR og Kormákur Ari Hafliðason FH munu berjast um sigur í 400 m hlaupi karla. Í 4×200 m boðhlaupum karla og kvenna er allt opið en eitt er víst, þar verður allt lagt undir. Keppni hefst kl. 13:00 og lýkur um kl. 15:30.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Fótbolti Fleiri fréttir Fór út í bíl og náði í byssu Messi klæddist Como-treyju Skagamenn á vergangi og af hverju skrifa fótboltamenn ekki á íslensku? Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Dagskráin: Meistaradeildin og Körfuboltakvöld kvenna „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United Stjarnan hefur fundið nýjan Bandaríkjamann „Þurfum að halda áfram á þessari braut“ „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Liverpool með fjögurra marka endurkomu Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Sjá meira