Körfubolti

Martin með átta stig í sigri

Einar Sigurvinsson skrifar
Martin í leik með landsliðinu.
Martin í leik með landsliðinu.
Martin Hermansson átti fínan leik þegar lið hans Chalons-Reims vann sigur á Limoges í frönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Martin spilaði í rúmar 29 mínútur fyrir Chalons-Reims og skoraði 8 stig í leiknum. Hann tók auk þess fimm fráköst og gaf sex stoðsendingar.

Eftir sigurinn í kvöld fer Chalons-Reims í 14. sæti frönsku úrvalsdeildarinnar, með 18 stig, fjórum stigum fyrir ofan fallsæti. Limoges, situr í 4. sæti deildarinnar, sex stigum frá toppsætinu.

Í næstu umferð mæta Martin og félagir erfiðan leik fyrir höndum þar sem þeir mæta Strasbourg, sem situr í efsta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×