„Taldi hana hafa átt það skilið því hún lagðist með svörtum manni“ Birgir Olgeirsson skrifar 21. mars 2018 12:39 Khaled Cairo í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. vísir/Rakel Ósk
Lögreglumaður sem sinnti réttarfarsrannsókn á Khaled Cairo segir Khaled hafa virkað einkar hress og mjög kátur kvöldið sem Sanita Brauna dó. Lögreglumaðurinn sagðist ekki hafa rætt málið við Khaled að fyrra bragði og því ekki um skýrslutöku að ræða. Hann hefði aðeins reynt að spjalla við Khaled til að fá upp úr honum hvað hann héti og fleira í þeim dúr. Lögreglumaðurinn sagði að sér hefði brugðið í brún þegar hann sá útganginn á Khaled. Hann hafi verið á Boxer-nærbuxum einum klæða og blóðugur frá hvirfli til ilja.Minnti á mann sem var að koma úr góðu partíi „Hann minnti mann á mann sem var að koma úr góðu partíi og virtist glaður með það sem hafði gerst,” sagði lögreglumaðurinn. Hann sagði að erfitt hefði verið að greina hvort að um áfengisáhrif hefði verið að ræða eða hvort eitthvað væri að andlega. Sagði lögreglumaðurinn að þarna hefði verið ljóst að ekki yrði tekin skýrsla af Khaled fyrr en runnið væri af honum og hann hefði farið í sturtu. „Hann hafði uppi stór orð um samskipti sín við brotaþola (Sanitu). Að hún hefði verið að leika sér að tilfinningum hans og hefði „fucked a nigger” og þar af leiðandi hafði hann þurft að gera það sem hann gerði,” sagði lögreglumaðurinn. Í framhaldinu var lagt hald á tölvu Sanitu til að reyna að komast að því hver hinn maðurinn hefði verið. Lögreglumaðurinn sagði að um 18 til 20 tímar hefðu liðið þar til hann fannst.„Allir eðlilegir menn hefðu brugðist þannig við" Lögreglumaðurinn sagði að hegðun Khaled við réttarfarsrannsókn hefði verið út yfir allt sem eðilegt getur talist og velti lögreglumaðurinn því fyrir sér við rannsókina hvort um andlega annmarka væri að ræða. Khaled hefði sýnt af sér kæti í réttarfarsrannsókninni þar sem hann talaði hispurslaust um að hann hefði ráðist á Sanitu. „Og taldi hana hafa átt það skilið því hún lagðist með svörtum manni og allir eðlilegir menn hefðu brugðist þannig við með þessum hætti,” sagði lögreglumaðurinn.Vilhjálmur H. Vilhjálmsson er verjandi Khaled.Vísir/RakelHelst læknum að kenna að hún væri ekki á lífi Lögreglumaðurinn sagði allt annan mann hafa mætt til skýrslutöku daginn eftir. Sagði lögreglumaðurinn Khaled vera glaðlyndan að eðlisfari en hann hafi sagt sína sögu með umbúðalausum hætti. Sagði lögreglunmaðurinn að Khaled hefði aldrei viljað kannast við að Sanita væri látin og það væri hans skoðun að hann hefði lamið hana en ekki svo mikið að hann að hún hefði átt að hafa hlotið bana af. Sagði lögreglumaðurinn Khaled hafa haldið því fram að Sanita hefði verið flutt með lífsmarki á spítala og það væri helst læknum að kenna að hún væri ekki lengur á lífi.Eftirminnileg skýrslutaka á Hólmsheiði Vilhjálmur Hans Vilhjálmsson, verjandi Khaled, spurði lögreglumanninn út í eftirminnilega skýrslutöku í fangelsinu á Hólmsheiði þar sem Khaled var í varðhaldi. Sagði lögreglumaðurinn Khaled ávallt hafa brugðist einkennilega við sinni stöðu og farið til að mynda að hlæja þegar honum voru sýndar myndir af Sanitu á vettvangi. Sagði lögreglumaðurinn að Khaled hefði aldrei sýnt merki um iðrun heldur að það væri skoðun Khaled að þetta hefði verið umflýjanlegt, þetta hefði ekki verið hans sök því hún hefði leikið sér að tilfinningum hans. Vilhjálmur Hans spurði lögreglumanninn hvort það væri hans mat að Khaled gengi heill til skógar. Lögreglumaðurinn sagði erfitt að meta yfir höfuð hvort að menn gengu heilir til skógar en sagði að Khaled virkaði að mörgu leyti eðlilegur. Lokað var fyrir ummæli við fréttina.
Manndráp á Hagamel Tengdar fréttir „Ég vissi að eitthvað hræðilegt ætti eftir að eiga sér stað út frá svipbrigðum mannsins“ Maður sem segist hafa verið í sambandi með Sanitu bar vitni við réttarhöldin í dag. 21. mars 2018 14:00 Sláandi Neyðarlínusímtal spilað við réttarhöldin: „Þú verður bara að vaða í þetta og ekkert kjaftæði“ Lögreglumaður hvatti meðleigjanda Sanitu til að grípa inn í atburðarásina. 21. mars 2018 15:34 Aðalmeðferð í Hagamelsmálinu: Gaf í skyn að Sanita hefði ekki fengið nægjanlega aðstoð á sjúkrahúsi Khaled Cairo og Sanita Braun höfðu aðeins hist einu sinni að sögn hins grunaða. Hann hafi orðið ástfanginn af henni. 21. mars 2018 11:38 Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Fleiri fréttir Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Svona var bein útsending Vísis frá setningu Alþingis „Við skulum bara spyrja að leikslokum“ Þingmálaskrá vetrarins: Sanngirnisbætur, sveitarstjórnarlög og samfélagsmiðlabann Sjá meira
„Ég vissi að eitthvað hræðilegt ætti eftir að eiga sér stað út frá svipbrigðum mannsins“ Maður sem segist hafa verið í sambandi með Sanitu bar vitni við réttarhöldin í dag. 21. mars 2018 14:00
Sláandi Neyðarlínusímtal spilað við réttarhöldin: „Þú verður bara að vaða í þetta og ekkert kjaftæði“ Lögreglumaður hvatti meðleigjanda Sanitu til að grípa inn í atburðarásina. 21. mars 2018 15:34
Aðalmeðferð í Hagamelsmálinu: Gaf í skyn að Sanita hefði ekki fengið nægjanlega aðstoð á sjúkrahúsi Khaled Cairo og Sanita Braun höfðu aðeins hist einu sinni að sögn hins grunaða. Hann hafi orðið ástfanginn af henni. 21. mars 2018 11:38