ÍBV úr leik eftir tap í Rúmeníu Arnar Geir Halldórsson skrifar 29. apríl 2018 15:18 ÍBV verður ekki Evrópumeistari í ár vísir/eyþór
ÍBV er úr leik í Áskorendakeppni Evrópu eftir fjögurra marka tap gegn rúmenska liðinu Potaissa Turda en leikið var ytra í dag. Eyjamenn unnu fyrri leikinn með þremur mörkum, 31-28 þegar liðin mættust í Vestmannaeyjum um síðustu helgi. Leikurinn í dag var sveiflukenndur en munurinn fór mest í fimm mörk. Heimamenn höfðu frumkvæðið framan af og leiddu í leikhléi með tveimur mörkum, 13-11. Eyjamenn voru betri í upphafi síðari hálfleiks og voru tveimur mörkum yfir þegar sextán mínútur lifðu leiks, 18-20. Heimamenn tóku hins vegar leikinn yfir á lokakaflanum og unnu að lokum fjögurra marka sigur. Lokatölur 28-24 fyrir Turda og samtals 56-55 sigur Rúmenanna. Sigurbergur Sveinsson var markahæstur Eyjamanna með sex mörk og næstur kom Theodór Sigurbjörnsson með fimm. Eyjamenn hafa verið afar sigursælir í vetur; unnið bikarmeistaratitil, deildarmeistaratitil og eru 1-0 yfir í undanúrslitaeinvígi gegn Haukum en nú er Evrópudraumurinn úti. Potaissa Turda leikur því til úrslita í þessari keppni annað árið í röð en í fyrra slógu þeir Valsmenn út í undanúrslitum.
Íslenski handboltinn Mest lesið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Enski boltinn Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Handbolti Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Íslenski boltinn Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Fótbolti Sá þriðji yngsti í sögu efstu deildar Íslenski boltinn Tveir handteknir grunaðir um að vera í glæpagengi sem herjar á íþróttafólk Sport Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Fótbolti Collin Pryor í Álftanes Körfubolti HM-hetja mun stýra Alberti Fótbolti Rodri ekki meira með KA í ár Íslenski boltinn Fleiri fréttir Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Skipað að ganga frá samningi við Alfreð sem fyrst Gísli Þorgeir tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn Elín Klara endaði leikinn með látum og er einum sigri frá titlinum Þjálfari Magdeburg sækist ekki eftir starfi Alfreðs Donni dreginn að landi af liðsfélögunum Magnaður Einar Bragi með ellefu mörk í fyrsta úrslitaleiknum Íslenskættaða goðsögnin hættir 44 ára að aldri Guðjón Valur pollrólegur yfir stöðunni Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Ungverjagrýlunni hent út en gæti enn fengið boð á ballið Naumt tap hjá Íslendingaliðinu í fyrri úrslitaleiknum Færeyingar í skýjunum með HM-sætið: „Eigum bara eftir að verða betri“ Færeyjar á HM í fyrsta sinn Strákarnir hans Dags unnu Svía Sjá meira