Unglingar létust í skyndiflóði Stefán Ó. Jónsson skrifar 27. apríl 2018 06:51 Þyrla sést hér taka þátt í björgunaraðgerðunum nærri Arva í suðurhluta Ísraels. Vísir/Getty
Níu ísraelskir unglingar létust í skyndiflóði er þeir gengu sunnan við Dauðahafið á dögunum.Í samtali við Guardian segir talsmaður lögreglu þar í landi að flóðið hafi komið þeim að óvörum. Miklar rigningar hafa verið í suðurhluta Ísraels að undanförnu og talið er að flóðið hafi verið regnvatn sem safnast hafði upp. Hin látnu voru hluti af 25 manna hópi sem undirbjó sig fyrir inngöngu í ísraelska herinn. Fimmtán hefur verið bjargað og eins er enn saknað. Átta hinna látnu voru drengir en sú níunda var stúlka, að sögn lögreglu. Forseti Ísraels sagði á Twitter-síðu sinni að ísraelska þjóðin gréti með aðstandendum hinna látnu. Hann sendi þeim samúðarkveðju sína og vonast til að bati hinna slösuðu verði hraður. Dauðahafið, sem liggur um 426 metra undir sjávarmáli, er umkringt eyðimörk og þar rignir alla jafna lítið. Þegar það rignir getur vatnið þó runnið eftir skurðum og sprungum og náð miklum hraða. Talið er að það kunni að hafa orsakað fyrrnefnt skyndiflóð.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira