Erlent

Hófu aftur á­rásir á olíuvinnslur eftir blóð­bað

Samúel Karl Ólason skrifar
Mikinn reyk ber frá Novokuybyshevsk-olíuvinnslunni í Samara eftir árás Úkraínumanna í morgun.
Mikinn reyk ber frá Novokuybyshevsk-olíuvinnslunni í Samara eftir árás Úkraínumanna í morgun. Telegram

Úkraínumenn gerðu í morgun umfangsmikla árás á stóra olíuvinnslu í Samara-héraði. Þar með bundu þeir enda á tveggja vikna árásahlé sem Úkraínumenn höfðu komið á vegna þrýstings frá ríkisstjórn Bandaríkjanna. Árásin var gerð eftir að Rússar felldu fjölda óbreyttra borgara í árásum í Úkraínu í gær.

Árásir Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi þykja vel heppnaðar en sala á olíuafurðum er langstærsta tekjulind rússneska ríkisins og er notuð til að fjármagna stríðið gegn Úkraínu.

Síðast réðust Úkraínumenn á olíuvinnslu í Rússlandi þann 15. október. Síðasta árásin sem gerð var á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi var þann 20. október.

Nú réðust Úkraínumenn á Novokuybyshevsk-olíuvinnsluna í Samara og bendir myndefni þaðan til þess að árásin hafi valdið töluverðum skemmdum.

Þessi árás var gerð í kjölfar þess að Rússar felldu að minnsta kosti 27 óbreytta borgara í árásum á einum sólarhring, þar á meðal fimmtán manns sem biðu á lestarpalli í Dnípró.


Gerðu hlé vegna Trumps

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur að undanförnu reynt að kenna árásum Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi um hátt eldsneytisverð. Hið rétta er að stríð hans gegn Íran spilar mun stærri rullu í hærra eldsneytisverði en þessar árásir.

Trump hefur gengið mjög hart fram gegn Vólódímír Selenskí, forseta Úkraínu, vegna þessa og talað máli Vladimírs Pútín Rússlandsforseta. Þá hefur hann dregið úr refsiaðgerðum gegn Rússlandi og lýst því yfir að Bandaríkin ætli að kaupa díselolíu af Rússum.

Eftir að Selenskí gagnrýndi Trump vegna þessa brást hann reiður við. Hann hefur síðan þá gagnrýnt Selenskí harðlega og sakað hann, en ekki Pútín, um að standa í vegi friðar með því að verða ekki við kröfum Rússa, sem fela í sér lítið annað en uppgjöf.

Bandaríkjamenn hafa einnig takmarkað varnir Úkraínumanna gegn rússneskum sjálfsprengidrónum, með því að takmarka það hvernig Úkraínumenn hafa getað notað móttökustöðvar Starlink-gervihnatta í Úkraínu.

Elon Musk, auðugasti maður heims og forstjóri SpaceX, sem rekur Starlink, mun hafa látið setja þessar takmarkanir á.

Sjá einnig: Musk segi ósatt um Starlink

Selenskí hefur sagst tilbúinn til að hætta árásum á rússneskar olíuvinnslur. Rússar þurfi þó að hætta árásum á úkraínsk orkuver og spennustöðvar, sem Rússar hafa markvisst verið að ráðast á fyrir komandi vetur. Það hafa Rússar ekki viljað samþykkja.

Eftir að Trump ákvað upp á sitt eindæmi að lýsa yfir orkuvopnahléi og laug því að bæði Rússar og Úkraínumenn hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði hvors annars, hættu Úkraínumenn árásum sínum í nokkra daga. Það gerðu Rússar ekki.

Sjá einnig: „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“

Evrópskir bakhjarlar Úkraínu höfðu í kjölfarið hvatt Selenskí til að draga úr árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi, þar til eftir þingkosningarnar í Bandaríkjunum í næstu viku, samkvæmt frétt Wall Street Journal.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×