„Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað Samúel Karl Ólason skrifar 30. október 2026 13:01 Dmitry Muratov kom að stofnun Novaya Gazeta, ásamt Míkhaíl Gorbatsjov, árið 1993 og var lengi ritstjóri dagblaðsins. Hann þurfti að flýja Rússland árið 2021. AP/Alexander Zemlianichenko Novaya Gazeta, einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands, verður lokað. Forsvarsmenn miðilsins segja yfirvöld í Rússlandi hafa „drepið“ hann með sífellt auknum þrýstingi á undanförnum árum. Rekstrinum verður hætt þann 9. nóvember, rúmum þremur áratugum eftir að fyrsta dagblaðið var gefið út.
Sergei Sokolov ritstjóri sagði í tilkynningu sem birt var á Youtube í morgun að dagblaðið hefði ekki dáið, það hefði verið drepið og stjórnarskrá Rússlands hefði verið drepin með því. Hún á að banna ritskoðun í Rússlandi. Sokolov sagði að rússneska ríkið og starfsmenn öryggisstofnana hefðu gert reksturinn ómögulegan. Texti yfirlýsingar hans var einnig birtur á vef Novaya Gazeta. Novaya Gazeta var stofnað árið 1993, eftir fall Sovétríkjanna og var um árabil eitt virtasta dagblað Rússlands. Míkhaíl Gorbatsjov, síðasti leiðtogi Sovétríkjanna, gaf hluta af verðlaunafénu sem hann fékk með Friðarverðlaunum Nóbels til að hjálpa við stofnun dagblaðsins, eins og fram kemur í frétt AFP-fréttaveitunnar. Ritstjórn blaðsins veigraði sér aldrei við því að fjalla með gagnrýnum hætti um rússneska ríkið og mannréttindabrot í Rússlandi. Í gegnum árin hafa nokkrir blaðamenn miðilsins verið myrtir. Þar á meðal er Anna Politkovskaya, sem var þá að rannsaka mannréttindabrot rússneskra hermanna í Téténíu. Hún fannst látin í fjölbýlishúsinu sem hún bjó í á afmælisdegi Vladimírs Pútín. Árið 2021 fékk Dmitry Muratov, stofnandi og fyrrverandi ritstjóri miðilsins, Friðarverðlaunin fyrir störf sín. Hann tileinkaði þau þeim sex blaðamönnum hans sem hafa verið myrtir í Rússlandi. „Igor Domnikov, Yuri Shchekochikhin, Anna Politkovskaya, Stas Markelov, Anastasia Baburova, Natasha Estemirova. Þetta er fólkið sem vann friðarverðlaun Nóbels,“ sagði Muratov þegar hann fékk verðlaunin. Tveimur árum síðar var Muratov skilgreindur af yfirvöldum í Rússlandi sem útsendari erlends ríkis og þurfti hann að láta af störfum og flýja úr landi. Margir úr ritstjórn Novaya Gazeta fóru þá til Lettlands og stofnuðu Novaya Gazeta Europe, sem er enn starfrækt. Sjá einnig: Lokað á Novaya Gazeta í Rússlandi Þá tók Sokolov við rekstrinum og hefur reynt að halda dagblaðinu gangandi síðan. Hafa beitt umdeildum lögum gegn fjölmörgum Síðan innrásin í Úkraínu hófst árið 2022 hafa yfirvöld í Rússlandi gert tugum félagasamtaka, fjölmiðla og einstaklinga ómögulegt að starfa í Rússlandi á grunni laga um útsendara erlendra ríkja og laga sem meina gagnrýni á rússneska herinn. Sjá einnig: Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Mannréttindadómstóll Evrópu hefur sagt fyrrnefndu lögin, lögin um útsendarana, vera brot gegn tjáningar- og samkomufrelsi. Sjá einnig: Telur rússnesk lög um erlenda útsendara stríða gegn mannréttindum Þeir sem hafa verið skilgreindir sem útsendarar erlendra ríkja hafa meðal annars þurft að merkja allt efni frá þeim sérstaklega. Þeim er meinað að taka þátt í kosningum og að tjá sig með eðlilegum hætti. Þá er þeim gert mjög erfitt að afla tekna. Sjá má hvernig blaðamenn Novaya Gazeta hafa þurft að merkja efni sitt efst í yfirlýsingunni um lokun miðilsins. Þar segir að efnið sé eingöngu ætlað þeim sem eru eldrei en átján ára og að það sé framleitt af útsendara erlends ríkis. Í yfirlýsingu sinni rifjar Sokolov upp allar þær aðgerðir sem rússneska ríkið beitti gegn Novaya Gazeta á undanförnum árum. Þá sagði hann frá því að í september hafi allir starfsmenn dagblaðsins verið skilgreindir sem útsendarar erlendra ríkja. Um væri að ræða rúmlega hundrað manns. Það virðist hafa verið síðasti nagli í líkkistu dagblaðsins.
Rússland Vladimír Pútín Fjölmiðlar Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Innlent Fleiri fréttir „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Sjá meira