Lífið

Rússneski forsetinn úr 24 á Dillon í sumar

Benedikt Bóas skrifar
Logan Bandaríkjaforseti og Nick Jameson sem rússneski forsetinn Suvarov.
Logan Bandaríkjaforseti og Nick Jameson sem rússneski forsetinn Suvarov. FOX
Hann byrjaði að koma sem gestur. Þannig virkar þetta. Við spilum eitt sett kannski klukkutíma og svo er bara skipt inn á.

Fólk kemur inn í þetta og það hafa alls konar spilarar dottið inn og oft er mikil dýnamík og skemmtun á sviðinu,“ segir tónlistarmaðurinn Beggi Smári en í kvöld hefst Blues Jam á Dillon.

Með Begga eru þeir Pétur Sigurðsson og Friðrik Geirdal í Bexband auk Nicks Jameson sem er þekktur tónlistarmaður og leikari. Hann hefur búið hér í þrjú ár.

Trúlega er hann þekktastur sem rússneski forsetinn Yuri Suvarov í spennuþáttaröðinni 24. Þá lék hann einnig í Lost og King of Queens svo fátt eitt sé nefnt.



Bexbandið mun spila á Dillon í allt sumar og geta gestir og gangandi gengið inn og tekið þátt í gleðinni.
Suvarov var mikill vinur Bandaríkjaforseta og kom alls fyrir í þremur þáttaröðum. Þegar hann birtist í áttundu seríu var hann búinn að sitja í sjö ár sem forseti. Geri aðrir betur.

24 fékk fjölmörg verðlaun, eins og 20 Emmy-verðlaun, Golden Globe og Screen Actors Guild verðlaun enda ótrúlega vel heppnuð sería.

„Við tókum smá hlé en erum að koma aftur í sumar. Það var alltaf troðið og góð stemning á þessum kvöldum,“ segir Beggi. „Hann var í gamla daga í goðsagnakenndu bandi, Foghat, sem gerði meðal annars Slow Ride, sem er geggjað lag,“ segir hann.

Það kostar ekkert inn á kvöldið og hlakkar Beggi mikið til að plokka gítarinn á ný. „Maður veit aldrei hvað kvöldið ber í skauti sér. Það getur alveg einhver komið sem kann minna og það er skemmtilegt en stundum koma mjög góðir spilarar, íslenskir og erlendir.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×