Neymar fagnaði endurkomunni með marki Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 3. júní 2018 15:52 Að sjá Neymar aftur á vellinum gleður marga fótboltaunnendur og sérstaklega stuðningsmenn Brasilíu vísir/getty
Neymar spilaði fótboltaleik í fyrsta skipti síðan hann fótbrotnaði í febrúar þegar hann kom inn í seinni hálfleik vináttuleiks Brasilíu og Króatíu sem fram fór á Anfield í Liverpool í dag. Neymar er einn besti fótboltamaður heims og hafa vonir Brasilíumanna á HM verið bundnar endurkomu Neymar eftir fótbrot sem hann hlaut í leik með PSG í febrúar. Neymar kom inn í hálfleik í leiknum í dag og skoraði stuttu seinna með þrumuskoti í slánna og inn. Óverjandi fyrir Danijel Subasic í marki Króata. Króatar voru sterkari í fyrri hálfleik, stjórnuðu spilinu á mðisvæðinu og Brasílíumenn áttu erfitt með að brjótast í gegnum vörn Króatanna. Brasilíumenn sóttu meira í seinni hálfleik og uppskáru með marki Neymar. Þegar leikurinn var við það að renna út skoraði Roberto Firmino með snyrtilegri vippu yfir Subasic í markinu. Úrslitin 2-0 sigur Brasilíu. Bæði lið eru að búa sig undir HM í Rússlandi. Þar eru Króatar í riðli með Íslandi og mætast liðin í þriðju umferð riðlakeppninnar þann 26. júní.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Íslenski boltinn Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Fleiri fréttir Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Tottenham - Coventry | Komast heimamenn af botninum? Fram - ÍA | Heimamenn hafa ekki unnið í fimm leikjum Glódís Perla og félagar áfram með fullt hús á toppnum Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum UEFA gefur Infantino lokafrest til að afhenta lykilskjöl „Hann kvartar yfir öllu“ Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Norska tromman á heimsmeistaramótinu seldist fyrir margar milljónir Segir félagið ekki vera að styðja hann lengur Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Orri Steinn skoraði í miklum markaleik Karólína skoraði og fullkomin byrjun Inter heldur áfram Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flug Freys heldur áfram: „Þetta er alveg ótrúlega ljúft“ Siggi Raggi einu stigi frá titlinum Tómas gat ekki stöðvað niðurlægingu Hearts Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Löng bið eftir sigri lengist enn Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjá meira