Loka á kaup á umdeildum skólaárásartölvuleik Kjartan Kjartansson skrifar 22. júní 2018 10:30 Skjáskot úr Virkum byssumanni. Vinstra megin á skjánum má sjá tölfræði yfir hversu marga óbreytta borgara og lögreglumenn spilarinn hefur drepið. Vísir/AP
Greiðslusíðan PayPal hefur lokað fyrir kaup á tölvuleik þar sem markmiðið er meðal annars að gera skotárás í skóla. Leikurinn hefur sætt harðri gagnrýni foreldra barna sem hafa fallið í skotárásum í bandarískum skólum. PayPal segist hafa lokað reikningi Acid Software sem framleiddi leikinn „Virkur byssumaður“ [e. Active Shooter] og vísar til stefnu fyrirtækisins um að taka ekki við greiðslum fyrir hluti sem stuðla að ofbeldi, að sögn AP-fréttastofunnar. Spilarar geta valið á milli þess að bregða sér í hlutverk byssumanns sem ræðst inn í skóla eða sérsveitar lögreglu sem reynir að stöðva hann. Þeir geta einnig valið sér vopn, handsprengju eða hníf. Tölfræði yfir fjölda óbreyttra borgara og lögreglumanna sem falla í valinn er sýnd á skjánum. Leikurnin hafði áður verið fjarlægður af tölvuleikjasíðunni Steam og hópfjármögnunarsíðunni Indiegogo eftir fjölda kvartana og undirskriftasafnana. Hýsingarfyrirtæki lokaði einnig vefsíðu leiksins. Hún var þá flutt yfir á rússneska netþjóna. „Virkur byssumaður“ er hugarfóstur Antons Makarevskíj, 21 árs gamals tölvunarfræðings frá Moskvu. Fyrirtæki hans, Acid Software, hefur séð um að markaðssetja leikinn. „Það virðist sem allir í Bandaríkjunum séu að reyna að ritskoða okkur án þess að útskýra hvað við erum nákvæmlega að brjóta,“ segir Ata Berdjév, fulltrúi Acid Software í Seattle.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Prestur lést þegar róðurkross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Sjá meira