Leikarinn Tab Hunter er látinn Kristín Ólafsdóttir skrifar 9. júlí 2018 16:22 Tab Hunter árið 1955. Vísir/Getty
Bandaríski leikarinn Tab Hunter er látinn, 86 ára að aldri, en hann var þekktur hjartaknúsari á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar. Hunter var samkynhneigður og er hans einna helst minnst fyrir að vera talsmaður og fyrirmynd hinseginfólks. Hunter lést í gær í Santa Barbara í Kaliforníu af völdum blóðtappa í fæti, sem leiddi til hjartaáfalls. Allan Glaser, kærasti Hunters til 35 ára, staðfesti dánarörsökina í samtali við Variety. Hunter lék í kvikmyndum á borð við Damn Yankees og Battle Cry og þá gaf hann út hið vinsæla lag Young Love. Kynhneigð Hunters var þó alltaf á milli tannanna á fólki, sem hafði slæm áhrif á feril hans á sínum tíma. Hann kom út úr skápnum árið 2005 í bók sinni Tab Hunter Confidential: The Making of a Movie Star. Þar skrifaði Hunter um tilraunir myndvera í Hollywood til að hylma yfir kynhneigð hans, m.a. með því að láta hann þykjast eiga í ástarsamböndum við leikkonur á borð við Debbie Reynolds og Natalie Wood. Hunter var ávallt tvístígandi yfir hlutverki sínu sem talsmaður réttindabaráttu hinseginfólks. Haft var eftir honum í viðtali árið 2015 að hlutverkið hefði reynst honum óþægilegt.
Andlát Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vučić játar ósigur Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Sjá meira