Erlent

Yfir hundrað hand­teknir í mót­mælunum

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Að minnsta kosti 135 höfðu verið handteknir í hádeginu.
Að minnsta kosti 135 höfðu verið handteknir í hádeginu. AP

Mótmælin í Frakklandi héldu áfram í dag en virðast fara fram með rólegra móti en fyrir viku. Þrátt fyrir það hafa um það bil 140 verið handteknir.

Mótmælaaldan sem hefur farið vaxandi í Frakklandi á síðustu vikum náði hámarki um síðustu helgi. Fjöldi fólks var handtekinn og voru gerðar miklar skemmdir á innviðum út um allt Frakkland. Fyrst um sinn voru mótmælendurnir helst menntaskólanemar sem mótmæltu slæmum námsskilyrðum. Þau snerust hins vegar í óeirðir.

„Við erum komin með nóg“ stendur á skiltinu.AP

Um sjötíu þúsund lögreglumenn eru við störf í dag og var víða neglt fyrir glugga verslana í miðborg Parísar til að undirbúa sig fyrir mótmælin. Sömuleiðis var mörgum neðanjarðarlestarstöðvum lokað.

Gilets jaunes-mótmælahreyfingin segir að mótmælt verði á yfir sjö hundruð stöðum víðs vegar um landið. Frönsk stjórnvöld hafa veitt leyfi fyrir mótmælum í átta borgum, þar á meðal París, Strasbourg og Marseille. Þrátt fyrir það er einnig mótmælt í Nantes, Bordeaux og Nice.

Lögreglan fylgist grannt með öllum mótmælunum.

Mótmælin hafa hingað til verið mun friðsamlegri heldur en fyrir viku. Ljósmyndir hafa verið birtar af lögreglunni að dreifa táragasi í borginni Nantes en í París er allt rólegt. Um 135 höfðu verið handteknir víðs vegar um landið í hádeginu.

Lögreglan handtekur mótmælanda.AP

Miðað við nýjustu myndir sem BBC birtir eru mótmælendur í Marseille byrjaðir að byggja víggirðingu.

Einnig voru haldin friðsamleg mótmæli í Orléans þar sem þrettán þúsund komu saman. Það var til að mótmæla á meðan flokksfundur hægriflokksins Þjóðfylkingarinnar fór fram. Þar var Jordan Bardella endurkjörinn sem forseti og búist er við því að Marine Le Pen tilkynni um forsetaframboð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×