Frumraun Tryggva í kvöld Hjörvar Ólafsson skrifar 6. júlí 2018 14:30 Tryggvi Snær Hlinason. Vísir/Getty
Tryggvi Snær Hlinason, landsliðsmaður í körfubolta, mun hefja leik með Toronto Raptors í Summer League (sumardeildinni) í kvöld. Er það æfingamót ætlað þeim leikmönnum sem komust ekki að hjá aðalliðum NBA-liðanna í nýliðavali sem og öðrum leikmönnum sem liðin hafa áhuga á að skoða með samning í huga. Tryggvi Snær kom til greina í nýliðavali NBA sem fram fór fyrir skömmu síðan, en hann var ekki valinn að þessu sinni. Toronto Raptors ákvað hins vegar að skoða þennan hávaxna miðherja enn frekar og mun hann leika með liðinu í þessari deild. Toronto Raptors mætir New Orleans Pelicans í fyrsta leik sínum í deildinni klukkan 19.30 í kvöld. Tryggvi Snær er enn samningsbundinn spænska liðinu Valencia, en hann gekk til liðs við félagið frá Þór Akureyri á síðasta ári og lék með því á síðustu leiktíð. Tryggvi Snær hyggst æfa í Santa Barbara í Kaliforníu þegar sumardeildinni lýkur og hefja svo æfingar með Valencia þegar undirbúningstímabilið hefst hjá liðinu um mánaðamótin september og október. Hann sagði í samtali við Fréttablaðið fyrir landsleikina gegn Búlgaríu og Finnlandi fyrr í þessum mánuði að hann sæi ekki annað fyrir sér en að hann myndi spila með spænska liðinu á næsta keppnistímabili. Nú er svo spurning hvort hann heilli annaðhvort forráðamenn Toronto Raptors eða annars NBA-liðs og fái samningstilboð þar.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Sjá meira