Settu í sjö laxa við opnun Stóru Laxár Karl Lúðvíksson skrifar 2. júlí 2018 09:00 Binni með flottan lax við opnun Stóru Laxár. Mynd: Árni Baldursson
Stóra Laxá í Hreppum opnaði um helgina en áin er líklega ein af þeim ám sem getur komið veiðimönnum vel á óvart á hverju ári. Fyrsta hollið í ánni þurfti að takast á við mikið vatn eins og margir aðrir veiðimenn við árnar á suður og vesturlandi þessa dagana en endalausar rigningar hafa haldið ánum háum í vatni og þegar litið er á veðurspánna eru ekki miklar líkur á að það breytist í bráð. Þrátt fyrir hátt vatn var sett í sjö laxa og af þeim voru fjórir dregnir á þurrt. Þessi tala gæti hafa hækkað eitthvað á seinni vaktinni í gær en við höfum ekki fengið það staðfest. Frá árinu 2009 hefur veiðin í ánni verið góð en með topp sem var árið 2013 þegar 1.776 laxar veiddust en það er metár í ánni. Frá því ári hefur veiðin farið lægst í 590 laxa í fyrra en þegar skoðaðar eru veiðitölur lengra aftur í tímann er það ekki slök veiði. Sem dæmi þá var besta veiðin á árunum 200-2009 á árinu 2006 þegar það veiddust 709 laxar í ánni en slökust var veiðin árið 2000 þegar aðeins 183 laxr veiddust. Mjög hátt sleppihlutfall er af laxinum sem er veiddur í ánni og hefur verið svo í nokkur ár eða síðan Lax-Á tók við ánni. Fram af því var það undantekning ef laxi var sleppt aftur. Afraksturinn af þessu er vonandi að skila sér og að áin sem í gamla daga var kölluð Tóma Laxá sé loksins komin á þann stað sem hún á skilið. Áin á líklega sína bestu daga síðsumars en frægar göngur í ánna á haustinn hafa varla farið framhjá neinum veiðimanni. Í bestu hollunum þar eru dæmi um að tveggja daga holl sé að fara yfir 100 laxa veiði og um helmingur af því verið tveggja ára lax.
Mest lesið Árni Friðleifsson gefur ekki kost á sér áfram Veiði Veiðileyfasalan hafin á Agn.is Veiði 400 kíló af laxi í net sín á einum degi Veiði Veiðidagbók Strengja komin í gagnið Veiði Síðasta helgin framundan til rjúpnaveiða Veiði Fyrsti Rínar-laxinn í Sviss í 50 ár Veiði Gæsaveiðin er búin að vera góð Veiði Grimmdarverk í Þingvallavatni Veiði Búið að opna fyrir úthlutun til félagsmanna SVFR Veiði Veiddi 34 punda lax við Tannastaði Veiði