Bandaríski bankinn Wells Fargo hefur fallist á að greiða rúma tvo milljarða dollara, jafnvirði rúmra 213 milljarðar króna, í sekt vegna fasteignalána sem yfirvöld fullyrða að hafi átt þátt í efnahagshruninu árið 2008. Stjórnendur bankans vissu að gæði lánanna væru minni en þeir létu í veðri vaka þegar hann seldi þau í formi verðbréfa.
Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna segir að sektin sé vegna sölu á verðbréfum sem byggðust á fasteignalánum einstaklinga sem bankinn vissi að innihéldu rangar upplýsingar um tekjur lántakenda. Á meðal lánanna eru svonefnd undirmálslán og önnur áhættusöm fasteignalán sem talin eru hafa leitt til fjármálahrunsins sem hófst í Bandaríkjunum fyrir áratug.
Reuters-fréttastofan segir að sektin nú bætist ofan á hrakföll bankans sem tengjast óeðlilegum vinnubrögðum starfsmanna hans við bifreiða- og fasteignalán. Wells Fargo greiddi einn milljarð dollara í sekt vegna rannsókna á vinnubrögðum bankans í apríl.
Fyrir tveimur árum komst upp að starfsmenn bankans höfðu stofnað banka- og kreditkortareikninga fyrir viðskiptavini án vitneskju þeirra. Málið hefur komið niður á afkomu og orðspori bankans sem er sá þriðji stærsti í Bandaríkjunum í eignum talið.
Wells Fargo greiðir tveggja milljarða dollara sekt vegna undirmálslána
