
Tónaflóð Rásar 2 við Arnarhól
kl. 20.00-23.00Það er nauðsynlegt og sjálfsagt að íslenskri dægurtónlist sé gert hátt undir höfði á þessum degi enda er Ísland hvað þekktast út á við fyrir þennan þátt og dægurtónlistarsenan rík, virk, skemmtileg og fjölskrúðug. Margsannað og -reynt. Þessi uppákoma skiptir máli og Rás 2 gerir vel í því að úthugsa dagskrána, upp á flæði, aldur o.s.frv. Rapparar og „r og b“ listamenn keyra þetta í gang, Prins Póló svo með súrrelískar hversdagslýsingar, Írafár með poppið og svo Todmobile með allra handa lokahnút. Almennilegt!
Hipphopp á Ingólfstorgi
kl. 18.00-22.00Eðlilega hvet ég gesti á öllum aldri, og þá sérstaklega þá sem trúa því einlæglega að „tónlistin hafi verið mun betri í gamla daga“ að koma við á gamla Hallærisplaninu (þar sem pönkið undi sér vel) og nema það sem ungviðið er að gera í hipphopplistinni – tónlistinni sem hefur nú formlega leyst rokkið af sem tónlist unga fólksins og hvað vinsældir á heimsvísu varðar. Þeir sem eru enn ekki vaknaðir og búnir að finna lyktina af kaffinu geta snarlega bætt úr því með heimsókn hingað.
Döbbskúrinn, Vitastíg 17
kl. 12.30-23.15Júlíus Ólafsson, tónlistarmaður, stórmeistari og Can-áhugamaður heldur utan um döbbskúrinn. Garðskúr Júlíusar fær endurnýjaðan tilgang og mun eima frá sér svellköldu döbbi, ættuðu frá Jamaíka, frá hádegi og fram að miðnætti. Plötusnúðar skiptast á að veiða upp gamalt og nýtt döbb og smellti sá sem þetta ritar í eina syrpu síðast þegar skúrinn var opinn. Mér skilst svo að hann verði ekkert endilega bundinn við þessa slakandi stefnu í ár og hreinlega allt geti gerst á Vitastígnum, enda þekkir góð tónlist engin mæri né mörk.

Ævintýraleg bókverkasmiðja í Safnahúsinu
kl. 14.00-16.00Eftir að hafa rennt í gegnum dagskrána líst mér best á Ævintýralegu bókverkasmiðjuna í Safnahúsinu. Ég hef sérlegan áhuga á bóka- og bókverkagerð. Svo er námskeiðið líka fyrir börn og fullorðna sem er mjög gott því ég hef meiri áhuga á að taka þátt heldur en að húka í dyragættum með úlpur í fanginu á meðan börn skemmta sér.
Tímagöng til 1918, Aðalstræti 10
kl. 12.00-15.00Ég er forvitin um sýninguna tímagöng til 1918 sem hefur eitthvað að gera með sýndarveruleikagleraugu. Bæði er sýndarveruleiki áhugaverður og svo hef ég verið með frostaveturinn mikla 1918 á heilanum eftir þetta ömurlega sumar.
Geimskipið Jörð í Hljómskálagarðinum
kl. 13.00-17.00Geimskipið Jörð í Hljómskálagarðinum hljómar eins og áhugaverð sýning. Þrjár ungar listakonur sem verða með hvelfingar sem hægt er að skyggnast inn í og skoða stjörnur, ský og geislavirkni í þokuhylki. Það hlýtur að vera áhugavert.

CGFC og Halldór Eldjárn: NAUHJ! A visual laboratory í Mengi
kl. 13.00-18.00Þeir sem ekki hafa heyrt um grafalvarlega flipplistahópinn CGFC verða að skilja tvennt: Kapítalisminn er úr sér genginn og diskó er æðsta listformið. Það segja þau að minnsta kosti, þetta frábæra sviðslista- og prjónalistafólk sem snýr þarna bökum saman. Þau verða með fimm klukkutíma gjörning í Mengi ásamt Halldóri Eldjárn, poppstjörnu og tölvunörd. Búast má við analog tæknibrellum, tónlist, leysigeislum og garni.
Menningarnótt á Óðinsgötu
kl. 13.30-21.00Spaðabani er klárlega ein besta hljómsveit allra tíma. Það vita allir sem hafa hundsvit á menningu og listum. Færri vita þó að hljómsveitin byrjaði sem femínísk rannsókn og sviðslistaverk. Þannig getur fólk farið með sviðslistagleraugun á pönktónleika í alræmda hljómsveitagreninu við Óðinsgötu 15. Nú eða bara engin gleraugu, bara opin og pönkþyrst eyru, það má líka. Mig minnir líka að Hórmenni séu að spila.
Spunamaraþon Improv Ísland í Þjóðleikhúskjallaranum
kl. 17.00-22.00Meðal sviðslistafólks þykir sérlega asnalegt að hafa ekki farið á að minnsta kosti tvö „improv“ námskeið. Þessu hef ég oft fundið fyrir, enda vil ég ekkert með slík námskeið hafa. Við eigum orðið prýðilegt landslið í þessu furðulega sporti, spunagríni, og ef fólk hefur látið það fram hjá sér fara er um að gera að fara á spunamaraþon í Þjóðleikhúskjallaranum. Að lokum skal bent á að vilji fólk ekki fara úr húsi getur það pantað Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur sviðshöfund heim til sín í húslestur.

Skemmtiskokk í Lækjargötu
kl. 12.15-13.15Stelpan mín fór í fyrra og það var mjög gaman. Georg og leikhópurinn Lotta halda uppi stuðinu og allir fá medalíu fyrir þátttöku. Frábært að virkja hana í að hlaupa, hún dregur mig þá kannski af stað næsta sumar!
Ratleikur og Lengsta landslagið á Kjarvalsstöðum
kl. 15.00-20.00Á Kjarvalsstöðum verður skemmtilegur ratleikur þar sem börn og foreldrar geta leyst þrautir saman. Þar er einnig skemmtileg smiðja þar sem börn geta tekið þátt í að mála lengsta landslagið, sem er málað í sameiningu á stóran renning. Þetta eru allt skemmtilegir viðburðir þar sem börn og foreldrar geta leikið sér saman og tekið þátt.
Æskusirkusinn, við útitaflið í Lækjargötu
kl. 14.00-15.00Þá næst skellum við okkur á þessa flottu sýningu þar sem börn sýna listir sínar innblásnar af þeirra uppáhaldskvikmyndum.