Pútín mildar umdeildar eftirlaunabreytingar Kjartan Kjartansson skrifar 29. ágúst 2018 10:34 Pútín hafði fram að ávarpinu forðast að blanda sér í umræðuna um eftirlaunabreytingarnar. Hann hafði áður lofað að eftirlaunaaldurinn yrði ekki hækkaður í hans tíð. Vísir/EPA
Dregið verður úr umdeildri hækkun eftirlaunaaldurs kvenna í Rússlandi. Vladímír Pútín forseti tilkynnti um þetta en vinsældir hans hafa minnkað nokkuð undanfarið í kjölfar harðra mótmæla gegn breytingunum. Til stóð að hækka eftirlaunaaldur kvenna úr 55 árum í 63 á næsta ári. Pútín tilkynnti í dag að hann yrði hækkaður í 60 ár. Ríkisstjórnin heldur sig þó við að hækka eftirlaunaaldur karla úr 60 árum í 65, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Hækkun eftirlaunaaldursins hefur mæst illa fyrir á meðal almennings. Verkalýðsfélög benda á að þær muni leiða til þess að margir Rússar muni ekki lifa nógu lengi til að komast á eftirlaun. Lífslíkur rússneskra karla eru 66 ár en kvenna 77 ár samkvæmt tölum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Í sjónvarpsávarpi færði Pútín rök fyrir því að breytingarnar væru nauðsynlegar þar sem vinnuaflið í landinu væri að dragast saman. Hætta væri á verðbólgu og vaxandi fátækt ef ekki yrði brugðist við með því að hækka eftirlaunaaldurinn. Væri því slegið frekar á frest myndi það ógna stöðugleika og öryggi rússnesks samfélags.
Rússland Mest lesið Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Innlent Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku Innlent Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Innlent Holmes flutt á áfangaheimili Erlent Hafði ekkert með átök sundþjálfaranna að gera Innlent Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Innlent Fleiri fréttir Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Þriggja turna þras í furstadæmunum Holmes flutt á áfangaheimili Banna búrkur og níkab Bygging nýs og stærra glæsihýsis Pútíns langt á veg komin Æðstu herforingjar halda skyndifund um árásir Húta Frægt fólk meðal handtekinna í New York „Höfum aldrei átt betra samband“ Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls Aftur stríð í Eþíópíu Danir vara við aukinni ógn frá Rússum Skortir fólk til að ná tökum á stjórnlausri ebólu Telur kosningasvik ekki hafa áhrif á stjórnarmyndun Høiby skiptir um verjendur Veturinn verði Rússum erfiður Bannaði Trump að banna fjölmiðla Gervigreind hakkaði sig inn á vef stjórnvalda Hélt á myndum af skólabörnum og sakaði Bandaríkin um hryðjuverk Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Sjá meira