Sakar miskunnsömu samverjana um að eyða milljónunum í lúxusvarning Kristín Ólafsdóttir skrifar 27. ágúst 2018 08:52 Kate McClure og Johnny Bobbitt.
Johnny Bobbitt, heimilislaus maður sem var miðpunktur milljónahópfjáröflunar bandarísks pars í fyrra, sakar parið, Kate McClure og Mark D‘Amico, um að stela peningunum sem söfnuðust fyrir hann og verja þeim í allskyns lúxusvarning.Greint var frá málinu á Vísi á sínum tíma en Bobbitt aðstoðaði McClure við að kaupa bensín á bíl hennar er hún varð eldsneytislaus á hraðbraut í New Jersey í Bandaríkjunum seint um kvöld. Bobbit færði McClure ekki aðeins bensínbrúsa í myrkrinu heldur greiddi hann fyrir brúsann með síðustu aurum sínum. Í kjölfarið ákváðu McClure og D‘Amico að hrinda af stað hópfjáröflun. Ætlunin var að safna fyrir innborgun á íbúð og bíl fyrir Bobbitt, sem er fyrrverandi hermaður og hefur glímt við eiturlyfjafíkn. Söfnunin fór fram úr björtustu vonum og samtals söfnuðust yfir 400 þúsund Bandaríkjadalir, eða rétt tæpar 43 milljónir króna.Nú hefur Bobbit hins vegar sakað parið um að stela af sér peningnum. Hann heldur því fram að McClure og D‘Amico hafi eytt hluta fjársins í frí, lúxusbifreið og fjárhættuspil. Þá var ekki keypt íbúð fyrir Bobbitt líkt og honum var lofað heldur fjárfestu McClure og D‘Amico í hjólhýsi handa honum sem stóð á lóð þeirra. Þá keyptu þau notaðan og úr sér genginn jeppling, Bobbitt til afnota. Hann er nú aftur orðinn heimilislaus en bæði hjólhýsið og bíllinn voru tekin af honum. McClure og D‘Amico bera því fyrir sig að Bobbitt sé eiturlyfjafíkill og því sé það glapræði að afhenda honum peninginn. Þau hafa beðist undan því að birta fjárhagsyfirlit eða reikninga yfir það sem safnaðist í fjáröfluninni. Þá hefur parið jafnframt haldið eftir bróðurpartinum af peningnum. GoFundMe, vefsíðan sem hýsti söfnunina, hóf rannsókn á málinu í vikunni.
Bandaríkin Tengdar fréttir Söfnuðu milljónum fyrir góðhjartaðan heimilislausan mann Johnny Bobbitt eyddi síðasta peningnum sínum til að kaupa eldsneyti fyrir konu í basli. Konan og kærasti hennar efndu til hópfjáröflunar fyrir Bobbitt sem sló í gegn. 24. nóvember 2017 16:42 Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Fleiri fréttir Dreifðu óvart piparúða um þinghúsið fyrir leikmun í innflytjendaumræðu Íslensk lögregla hjálpaði við rannsókn á smygli á fólki til Bretlands Polo einn kröftugasti fellibylur sögunnar Segja aðgengi að heimili forsetans forréttindi en ekki rétt Fögnuður varð að fjöldamorði Taívan og mannréttindi rauðar línur fyrir Kínverja Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts Sjá meira
Söfnuðu milljónum fyrir góðhjartaðan heimilislausan mann Johnny Bobbitt eyddi síðasta peningnum sínum til að kaupa eldsneyti fyrir konu í basli. Konan og kærasti hennar efndu til hópfjáröflunar fyrir Bobbitt sem sló í gegn. 24. nóvember 2017 16:42