Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Sunna Sæmundsdóttir skrifar 23. september 2026 07:02 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. vísir/Viktor Freyr Samfylkingin er áfram stærsti flokkur landsins með ríflega tuttugu og sjö prósenta fylgi í nýrri könnun Maskínu. Fylgi Viðreisnar stendur nær óbreytt í tæpum tólf prósentum en Flokkur fólksins dalar aftur á móti lítillega og fer niður í rúm fjögur prósent. Samanlagt fylgi stjórnarflokkanna breytist lítið á milli mánaða.
Rætt hefur verið um stöðu stjórnarflokkanna í ljósi niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar þar sem þjóðin hafnaði því að fara í aðildarviðræður við Evrópusambandið og hefur staða Viðreisnar, sem hefur sett Evrópumál á oddinn, sérstaklega verið nefnd. Samkvæmt nýrri könnun Maskínu virðist fylgishreyfingin afar lítil. Í síðustu könnun Maskínu í ágúst mældust ríkisstjórnarflokkarnir þrír með samanlagt 42,9 prósenta fylgi. Staða þeirra styrkist örlítið á milli mánaða og stendur fylgið í 43,6 prósentum í septembermælingunni. Fylgi Samfylkingarinnar eykst um ríflega eitt prósentustig og mælist 27,5 prósent en á móti dregst fylgi Flokks fólksins saman um eitt prósentustig og mælist 4,3 prósent. Þá breytist fylgi Viðreisnar nær ekkert og stendur í 11,9 prósentum. Sjálfstæðisflokkurinn mælist næst stærstur með tuttugu og fimm prósent og er fylgið óbreytt á milli kannnana. Þá haggast Miðflokkurinn ekki heldur og mælist með þrettán prósent. Framsókn mælist einnig á sama stað með 7,5 prósenta fylgi. Þá eru ekki miklar breytingar á stöðu flokkanna þriggja sem standa utan þings. VG mælist með 4,5 prósenta fylgi, Píratar eru með ríflega þrjú prósent en fylgi Sósíalista dregst aðeins saman og stendur í þremur prósentum. Septembermælingin byggir á þremur könnunum og alls tóku 4.544 afstöðu til flokks. Fyrsta könnunin fór fram 21. til 25. ágúst, önnur 27. til 28. ágúst og sú þriðja 8. til 14 september.
Skoðanakannanir Viðreisn Samfylkingin Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Framsóknarflokkurinn Flokkur fólksins Píratar Sósíalistaflokkurinn Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Fleiri fréttir Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Sjá meira