Dries Mertens tryggði sigur Napoli Dagur Lárusson skrifar 25. ágúst 2018 20:30 Dries Mertens. Vísir/Getty Dries Mertens tryggði Napoli magnaðan endurkomusigur á AC Milan í ítalska boltanum í kvöld. Liðsmenn AC Milan mættu ákveðnir til leiks og sóttu stíft fyrstu mínúturnar og náðu að skapa sér góð færi. Giacomo Bonaventura náði að skora úr einum af þeim færum á 15. mínútu og kom því sínum mönnum yfir. Staðan var 1-0 í hálfleiknum en AC Milan var ekki lengi að tvöfalda forystuna í seinni hálfleiknum því Davide Calabria skoraði strax á 49.mínútu. Liðsmenn Napoli voru þó ekki á þeim buxunum að gefast upp og minnkuðu þeir muninn aðeins fjórum mínútum seinna en þar var á ferðinni Piotr Zielinski. Hann var síðan aftur á ferðinni á 67. mínútu og jafnaði metin fyrir heimaliðið og allt stefndi því í æsipennandi lokamínútur. Á þessum tímapunkti í leiknum voru liðsmenn Napoli heldur betur með yfirhöndina og sköpuðu þer mikið af færum. Dries Mertens fékk eitt af þeim færum á 80. mínútu og skoraði hann úr því og kom sínum mönnum því yfir í fyrsta sinn í leiknum. Þetta var síðasta mark leiksins og því fékk Napoli stigin þrjú. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti