Viktor með fjórar þrennur á innan við tveimur mánuðum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. ágúst 2018 11:30 Þróttarinn Viktor Jónsson. Fréttablaðið/Ernir
Viktor Jónsson skoraði þrennu fyrir Þrótt í Ólafsvík í gær og var maðurinn á bak við 4-3 endurkomusigur liðsins. Strákurinn er nú kominn með sautján mörk í Inkasso-deildinni í sumar eftir tvo magnaða mánuði. 20. júní var Viktor Jónsson búinn að spila sex leiki í Inkasso-deildinni og hafði fengið jafnmörg rauð spjöld í deildinni (1) og hann hafi skorað af mörkum (1). Viktor skoraði þrennu í 5-2 útisigri á Haukum 21. júní og hefur ekki litið til baka síðan. Þrennan í gær var hans fjórða á aðeins 60 dögum eða á innan við tveimur mánuðum. Hann skoraði einnig þrennu í leikjum á móti ÍA og Magna. Viktor var að skora þrennu í öðrum leiknum í röð en leikurinn á móti Magna var 14. ágúst síðastliðinn. Með þessum sex mörkum komst hann upp í efsta sætið yfir markahæstu menn deildarinnar en Viktor hefur skorað 16 mörk í síðustu 10 leikjum sínum í Inkasso-deildinni. Frá 21. júní eru aðeins fjögur lið í Inkasso deildinni (Þór Ak., ÍA, Víkingur Ó. og Selfoss) búin að skora fleiri mörk en Viktor eins og sjá má á þessari töflu hér fyrir neðan. Viktor er búinn að skora yfir helming marka Þróttara á þessum tíma.Mörk Viktor Jónssonar og liðanna í Inkasso-deildinni frá 21. júní: Þróttur 31 Þór Ak. 25 ÍA 23 Víkingur Ó. 19 Selfoss 19Viktor Jónsson 16 HK 16 Fram 15 ÍR 12 Magni 12 Haukar 12 Leiknir 8 Njarðvík 6 Hér fyrir neðan má síðan sjá öll mörkin hans Viktors í Ólafsvík í gær sem og hin mörkin í þessum ótrúlega sjö marka leik.
Íslenski boltinn Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Fleiri fréttir Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Valur - Víkingur R. 1-1 | Valur enn á lífi Umfjöllun: Þór/KA - Fram 1-2 | Fram áfram í Bestu Valur í hættu á að falla í fyrsta skipti í sögunni Kanónur og ungstirni í ótrúlegri baráttu um Íslandsmeistaratitil Mattías Kjeld valdi KR Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sigurður Egill og Aron Snær framlengja við Þrótt Owen farinn frá Val og fleiri breytingar boðaðar Uppgjörið: FH - Frankfurt 0-1| Eins marks tap gegn stórliðinu Ætla að refsa sigursælasta liði Póllands Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Sjá meira