Ronaldo mistókst að skora í sigri Juventus Anton Ingi Leifsson skrifar 1. september 2018 20:15 Ronaldo í baráttunni í dag. Vísir/Getty Juventus er með fullt hús stiga eftir þrjá leiki eftir 2-1 sigur á nýliðum Parma í kvöld. Cristiano Ronaldo náði ekki að skora fyrir Juventus. Juventus var ekki lengi að komast yfir en Mario Mandzukic kom Juventus yfir strax á annarri mínútu og útlitið gott fyrir ítölsku meistaranna. Það var hins vegar fyrrum leikmaður Arsenal og Roma, Gervinho, sem jafnaði metin á 33. mínútu og staðan var 1-1 í hálfleik. Blaise Matuidi reyndist hetja Juventus á 58. mínútu er hann skoraði sigurmarkið eftir undirbúning Mandzukic. Lokatölur 2-1. Cristiano Ronaldo komst ekki á blað í dag en hann hefur ekki skorað í fyrstu þremur leikjum sínum hjá Juventus sem eru á toppnum með fullt hús. Ítalski boltinn
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti