Russell Westbrook gekkst undir hnéaðgerð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. september 2018 18:00 Russell Westbrook. Vísir/Getty
Russell Westbrook lagðist á skurðarborðið rétt rúmum mánuði fyrir fyrsta leik á NBA-tímabilinu. Westbrook lét hreinsa á sér hægra hnéð og upphafi tímabilsins er nú í smá hættu. Russell Westbrook mun ekki taka þátt í undirbúningstímabilinu með Oklahoma City Thunder og það er óvíst hvort hann verði með liðinu í fyrsta leik tímabilsins á móti Golden State Warriors 16. október. Oklahoma City Thunder mun meta stöðuna á ný eftir fjórar vikur og þá kemur í ljós hvort Westbrook nái þessum fyrsta leik tímabilsins. Hann mun í það minnsta ekki flýta sér til baka.Russell Westbrook will miss the entire preseason and be re-evaluated in four weeks. pic.twitter.com/3LDDDmLdsh — SportsCenter (@SportsCenter) September 12, 2018Westbrook hafði kvartað undan stífleika í hægra hnénu undanfarna viku í einstaklingsæfingum hjá Oklahoma City Thunder. Það var ákveðið að senda hann í speglun og láta hreinsa hnéð. Annars hefði hann eflaust þurft að spila í gegnum þessi óþægindi allt komandi tímabili. Westbrook hefur áður glímt við meiðsli á hægra hnénu en hann reif liðþófann eftir brot Patrick Beverley í úrslitakeppninni 2013. Westbrook gekkst þá undir þrjár hnéaðgerðir á níu mánaða kafla en náði sér loks góðum. Síðan eru liðin fjögur og hálft ár. Russell Westbrook hefur á þeim tíma verið kosinn besti leikmaður NBA-deildarinnar og er búinn að vera með þrefalda tvennu að meðaltali undanfarin tvö tímabil. Russell Westbrook var með 25,4 stig, 10,1 frákast og 10,3 stoðsendingar að meðaltali á síðasta tímabilið og MVP-tímabilið á undan var hann með 31,6 stig, 10,7 fráköst og 10,4 stoðsendingar í leik.
NBA Mest lesið PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira