Norlén nýr forseti sænska þingsins Atli Ísleifsson skrifar 24. september 2018 10:48 Hinn 45 ára Andreas Norlén hefur átt sæti á sænska þinginu frá árinu 2006. Mynd/moderaterna
Andreas Norlén, þingmaður hægriflokksins Moderaterna, var í morgun kjörinn nýr forseti sænska þingsins. SVT greinir frá kjörinu, en sænska þingið kom í fyrsta skipti saman í morgun eftir kosningarnar 9. september. Snúin staða er uppi í sænskum stjórnmálum eftir kosningarnar þar sem hvorug hefðbundnu blokkanna náði meirihluta. Rauðgræna blokkinn tryggði sér 144 þingsæti, bandalag borgaralegu flokkanna 143 og Svíþjóðardemókratar 62. Bandalag borgaralegu flokkanna tilnefndu Norlén en fyrir helgi sögðust Svíþjóðardemókratar ætla að styðja þann sem borgaralegu flokkarnir tilnefndu. Åsa Lindestam, þingmaður Jafnaðarmanna, var kjörinn fyrsti varaforseti. Hinn 45 ára Norlén hefur átt sæti á sænska þinginu frá árinu 2006. Hann gegndi stöðu lagaprófessors við Háskólann í Linköping áður en hann tók sæti á þingi. Embætti þingforseta er valdamikið í Svíþjóð, en auk þess að stýra dagskrá þingsins tilnefnir hann forsætisráðherra sem þingið greiðir svo atkvæði um. Þingforsetanum er ætlað að vera hafinn yfir flokkapólitík, en stóru flokkarnir líta á það sem kost að hafa sinn mann í stóli þingforseta við stjórnarmyndun. 203 þingmenn greiddu atkvæði með Norlén sem nýr forseti þingsins, en 145 með Lindestam.
Norðurlönd Þingkosningar í Svíþjóð Tengdar fréttir Valdabaráttan nú fyrir opnum tjöldum þegar sænska þingið kemur saman Sænska þingið kemur saman í fyrsta sinn í dag eftir kosningar sem fram fóru þann 9. september síðastliðinn. 24. september 2018 08:45 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira
Valdabaráttan nú fyrir opnum tjöldum þegar sænska þingið kemur saman Sænska þingið kemur saman í fyrsta sinn í dag eftir kosningar sem fram fóru þann 9. september síðastliðinn. 24. september 2018 08:45