Innlent

Lögregla vill ná tali af fólkinu á myndinni

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Þó að myndin sé óskýr bindur lögregla vonir við að klæðaburður einstaklinganna gefi vísbendingu um þá.
Þó að myndin sé óskýr bindur lögregla vonir við að klæðaburður einstaklinganna gefi vísbendingu um þá. Mynd/lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af einstaklingunum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til meðferðar. Þeir eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglustöðina á Hverfisgötu 113-115 í Reykjavík í síma 444 1000.

„Myndin er vissulega óskýr, en þó má ætla að klæðaburður viðkomandi geti mögulega hjálpað til við að bera kennsl á þá sem þarna eru á ferð,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Þeir sem þekkja til einstaklinganna á myndinni eða vita hvar þá er að finna eru beðnir um að hringja í lögregluna, en upplýsingum má jafnframt koma á framfæri í tölvupósti á netfangið gudrun.jack@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×