Icardi hetjan í uppbótartíma í Mílanóslagnum Anton Ingi Leifsson skrifar 21. október 2018 20:30 Icardi í baráttunni í kvöld. Vísir/Getty Mauro Icardi reyndist hetjan er Inter hafði betur gegn AC Milan í Mílanóslagnum á San Siro í kvöld en sigurmarkið kom í uppbótartíma. Leikið var á San Siro en þrátt fyrir að hafa verið meira með boltann og átt fleiri skot að marki AC Milan reyndist Inter erfitt að skora. Það var svo í uppbótartíma er sigurmarkið kom. Frábær fyrirgjöf frá Matias Vecino rataði beint á kollinn á Icardi sem brást ekki bogalistinn. Rosaleg dramatík. Inter er því í þriðja sæti deildarinnar með nítján stig en Milan er með tólf stig í tólfta sæti deildarinnar. Ítalski boltinn
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (50.-41. sæti): Skagamiðverðir, markahrókar úr Eyjum og Laugardalnum og öldungurinn aftast
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn