Héldu að uppljóstrarinn væri erlendur ferðamaður Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 30. nóvember 2018 08:02 Þau sem sátu að sumbli á Klaustri 20. nóvember. Karl Gauti Hjaltason, Bergþór Ólason, Gunnar Bragi Sveinsson, Ólafur Ísleifsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Anna Kolbrún Árnadóttir.
Svo virðist sem þeir sex þingmenn sem sátu að sumbli á Klaustur bar þann 20. nóvember hafi haldið að uppljóstrarinn sem náði samræðum þeirra á upptöku hafi verið erlendur ferðamaður. Þar var hins vegar á ferðinni íslenskur kjósandi sem blöskraði svo orðfæri þingmannanna að hann teygði sig í þriggja ára gamlan síma sinn og hóf upptöku. Hann segist ekki fylgjast vel með þjóðmálum en þekkti Sigmund Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formann Miðflokksins. Orðfærið hafi verið slíkt að hann taldi það eiga erindi við almenning.Þetta kemur fram í DV í dag þar sem rætt er við manninn. Nafns hans er ekki getið en hann er kallaður Marvin. Í netfangi hans kom talan 42 fyrir en nafnið og talan er vísun í Hitchhiker‘s Guide to the Galaxy. Sigmundur Davíð hefur sagt að hann telji líklegt að einhver hefði brotist inn í síma eins þeirra sem sat við borðið eða að beitt hafi verið hlerunarbúnaði. Hið rétta er að maðurinn var á nálægu borði og heyrði vel í þingmönnunum. „Það var erfitt að greina allt sem þau sögðu en eins og ég segi, mér blöskraði það sem ég heyrði og þess vegna byrjaði ég að taka samtal þeirra upp án þess að vita nokkuð hvað ég ætti að gera við það,“ segir Marvin í samtali við DV.Viðtalið í heild má lesa á vef DV.Ætlaði að stoppa stutt en blöskraði ummæli um Freyju og Albertínu Marvin hafði ætlaði sér ekki að sitja lengi við barinn en eftir um 20 mínútur byrjuðu þingmennirnir að hæðast að Freyju Haraldsdóttur og Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur og þá var honum nóg boðið. „Þá fékk ég æluna upp í háls og ákvað að hér myndi ég sitja þangað til að samtali þeirra væri lokið. Þetta væri ekki í boði í siðuðu samfélagi.“ Marvin segir að þingmennirnir hafi setið að sumbli langt fram á kvöld. Upptökurnar eru rúmlega þrjár klukkustundir að lengd, í sjö hlutum og gæðin misjöfn. Hann hafi á stundum falið símann með skjölum. „Þau veittu mér aldrei sérstaka athygli. Umræðurnar voru svo rosalegar að þau litu mjög sjaldan til mín. Þá töluðu þau svo hátt að ég hugsa að starfsfólkið á barnum, sem er í öðru rými, hefði getað náð góðum upptökum af samtali þeirra.“ Fólkið hafi sýnt sitt rétta eðli „Það var ekki fyrr en þau stóðu upp og bjuggu sig undir að fara sem þau veittu mér einhverja athygli. Þegar þau voru komin fram þá minntist einhver þeirra á hvort þessi manneskja hafi verið þarna allan tímann, en þá sagði annar að ég væri erlendur ferðamaður og það þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur af mér.“ Maðurinn segist ekki hafa vitað hvað hann ætti að gera við upptökurnar. Hann hafi reynt að fletta upp hverjir sátu við borðið með Sigmundi Davíð en gat ekki verið viss og þess vegna hafi hann ákveðið að senda efni á fjölmiðla svo þeir gætu unnið fréttir upp úr því mikilvægasta. Hann sé ánægður hvernig til tókst. „Stjórnmálamenn eru í valdamiklum stöðum og hafa skyldum að gegna gagnvart okkur. Þau setja upp sparibrosið fyrir kosningar en þarna held ég að þeirra rétta eðli hafi sýnt sig. Það á erindi við almenning.“
Alþingi Upptökur á Klaustur bar Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Fleiri fréttir „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ „Maður á ekki að fara í felur með það sem maður er að gera“ Ætlaður hnífur sé tannbursti sem hafi róandi áhrif „Held að ráðherra hafi slegið góðan tón í dag“ Menntavísindasvið greinir PISA-niðurstöður PISA: „Þetta er ákveðinn sorgardagur“ Hafi sest upp í bílinn fyrir mistök Sjá meira