AC Milan og Torino gerðu markalaust jafntefli er liðin mættust í fimmtándu umferð ítölsku úrvalsdeildarinnar á San Siro í kvöld.
LIðin fengu heldur betur tækifærin til þess að skora en allt kom fyrir ekki og öll færi leiksins fóru forgörðum. Niðurstaðan 0-0.
AC Milan er í fjórða sæti deildarinnar með 26 stig en Torino er tveimur sætum neðar með 22 stig. Juventus er á toppnum með 43 stig.
