Fjármálaeftirlitið úrskurðaði sex stjórnendur fjármálafyrirtækja óhæfa 2013-2016 Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 15. desember 2018 13:00 Frá árinu 2009 hefur Fjármálaeftirlitið lagt aukinn þunga á eftirlit með því hvort hæfisskilyrði þeirra stjórnarmanna og framkvæmdastjóra sem fengnir hafa verið til starfa fyrir fjármálafyrirtæki hafi verið uppfyllt. Fréttablaðið/Vilhelm
Alls komu upp sex tilvik á árunum 2013-2016 þar sem stjórnarmenn eða framkvæmdastjórar hjá fjármálafyrirtækjum stóðust ekki hæfisskilyrði laga til að gegna stöðu slíkum stöðum. Síðustu tvö ár eru nokkur dæmi um slíkt. Frá árinu 2009 hefur Fjármálaeftirlitið lagt aukinn þunga á eftirlit með því hvort hæfisskilyrði þeirra stjórnarmanna og framkvæmdastjóra sem fengnir hafa verið til starfa fyrir fjármálafyrirtæki hafi verið uppfyllt. Samkvæmt lögum um hæfiskilyrði stjórnar og framkvæmdastjóra fjármálafyrirtækja mega stjórnendur slíkra fyrirtækja ekki hafa verið úrskurðaðir persónulega gjaldþrota á síðustu fimm árum. Þá mega stjórnarmenn ekki hafa hlotið dóm á síðustu 10 árum fyrir refsiverðan verknað. Árið 2015 samþykkti Alþingi lagabreytingar er varða hæfisskilyrðin sem fólu í sér að krafist var að stjórnarmenn og framkvæmdastjórar fjármálafyrirtækja hefðu gott orðspor. Breytingin veitir Fjármálaeftirlitinu heimild til að kanna háttsemi einstaklings í stjórn eða framkvæmdastjórn fjármálafyrirtækja. Samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu mat það sex einstaklinga óhæfa til að taka við stöðu stjórnarmanns eða framkvæmdastjóra hjá fjármálafyrirtækjum á árunum 2013-2016 samkvæmt þessum lögum. Þá eru nokkur dæmi um það á undanförnum árum. Þá hafa tilvonandi og starfandi stjórnarmenn/framkvæmdastjórar sagt sig sjálfviljugir frá störfum, áður en niðurstaða hefur fengist í mál þeirra hjá Fjármálaeftirlitinu. Frumskylda um mat á hæfi stjórnenda liggur þó ávallt hjá stjórnarmönnum eða framkvæmdastjóra Fjármálafyrirtækja samkvæmt upplýsingum frá Fjármálaeftirlitinu. Þannig beri stjórn fyrirtækis að gæta sérstaklega að því að framkvæmdastjóri félags standist þau hæfisskilyrði sem til hans eru gerð.
Mest lesið Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Aðskotahlutur fannst í kanilsykurspoka Neytendur Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent Kaldvík fær enn frekari frest Viðskipti innlent Fleiri fréttir Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Sjá meira