Guðmundur: Ég þarf að fá ákveðin svör Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. desember 2018 20:45 Guðmundur segir mönnum til á æfingu. Fréttablaðið/Eyþór
Ísland hefur á morgun lokaundirbúning sinn fyrir HM í handbolta með formlegum hætti þegar að strákarnir okkar mæta Barein í æfingaleik í Laugardalshöllinni. Það verður fyrri æfingaleikur liðanna en þau mætast líka á sunnudag. Guðmundur Guðmundsson hefur verið að fá leikmenn til landsins síðustu daga og reiknar með að geta stillt upp sínu sterkasta liði á sunnudag. Þó hóf hann æfingar fyrir jól með þeim leikmönnum sem hafa verið hér á landi og sagði hann við íþróttadeild í dag að þær hefðu gengið vel. Staða leikmanna er góð að sögn Guðmundar en ljóst er að hann þarf að skera niður um 3-4 leikmenn úr 20 manna æfingahópi sínum áður en haldið verður til Þýskalands, þar sem Ísland hefur leik á HM þann 11. janúar. „Þetta verður tvískipt,“ sagði Guðmundur um leikina tvo gegn Barein. „Á morgun munum við prófa leikmenn, jafnvel í nokkrum stöðum - til að mynda hjá leikstjórnendum. Við munum gefa þeim tækifæri til að spreyta sig. Við erum líka að skoða miðjuna í vörninni og línumennina,“ sagði þjálfarinn og ljóst að í þessum stöðum ríkir helst samkeppni um sæti í lokahópi Íslands. „Það eru margir um hituna en menn eru í mismunandi ásigkomulagi og við verðum bara að taka stöðuna eftir leikinn á morgun,“ segir Guðmundur og bætir við að hann þurfi að fá ákveðin svör úr leik morgundagsins. „Í seinni leiknum munum við svo stilla upp okkar sterkasta liði miðað við þá leikmenn sem við verðum með þá.“
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira