Japanir sagðir ætla að segja skilið við Alþjóðahvalveiðiráðið Atli Ísleifsson skrifar 20. desember 2018 08:27 Japanir hættu hvalveiðum í atvinnuskyni á níunda áratugnum í kjölfar ákvörðunar ráðsins að tímabundið banna allar slíkar viðar. EPA
Stjórnvöld í Japan hyggjast draga sig úr Alþjóðahvalveiðiráðinu. Frá þessu greinir fréttastofan Kyodo News og vísar í heimildarmenn innan japönsku ríkisstjórnarinnar. Guardian segir frá því að greint verði frá ákvörðuninni í lok mánaðar og munu Japanir ganga úr ráðinu á næsta ári. Fyrr á árinu var tillögu japanskra stjórnvalda að heimila hvalveiðar í atvinnuskyni hafnað innan ráðsins. Japanir hættu hvalveiðum í atvinnuskyni á níunda áratugnum í kjölfar ákvörðunar ráðsins að tímabundið banna allar slíkar viðar. Japanir hafa þó nýtt sér smugur í regluverkinu og stundað svokallaðar vísindaveiðar, sem margir vilja meina að sé skjól til að komast framhjá hvalveiðibanninu. Japanir hafa jafnframt lagt áherslu á að flestar hvalategundir séu ekki í útrýmingarhættu og að það sé órjúfanlegur hluti japanskrar matmenningar að snæða hvalkjöt.Saga ráðsins Ráðið var stofnað árið 1946 og var ætlað að vinna í þágu hagsmuna hvalveiðiþjóða en í kjölfar hnignunar hvalastofna urðu verndunar- og friðunarsjónarmið ríkjandi innan ráðsins. Helsta markmið ráðsins nú er að stuðla að vernd hvalastofna þannig að hvalaveiðar geti þróast með skipulegum hætti. Hvalveiðibanninu var komið á árið 1982, en nokkur ríki, þeirra á meðal Ísland og Noregur, stunda þrátt fyrir það hvalveiðar í atvinnuskyni.
Asía Hvalveiðar Japan Noregur Sjávarútvegur Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira