Eitt landslið má vera með fjóra fleiri leikmenn en önnur lið á HM í handbolta í ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2019 11:45 Landsliðhópur Kóreu, Mynd/handball19.com
Heimsmeistaramótið í handbolta karla hefst á fimmtudagskvöldið og í dag mun koma í ljós hvaða leikmenn verða í HM-hópi Íslendinga á þessu stærsta heimsmeistaramóti sögunnar. Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari Íslands, þarf að taka þá erfiðu ákvörðun að skera niður æfingahópinn en hann mun líklega velja sautján manna hóp. Hvert landslið á HM 2019 má reyndar aðeins vera með sextán leikmenn í sínum leikmannahóp en líklegast er að Guðmundur vilji fara út með sautján menn og hafa því einn leikmann utan hóps. Það er reyndar eitt lið á HM í ár sem þarf ekki að fara eftir þessari sextán leikmanna reglu því ein af þátttökuþjóðunum 24 er á sérstakri undanþágu frá Alþjóðahandboltasambandinu. Þetta kemur fram á heimasíðu IHF. Þetta er nefnilega sögulegt heimsmeistaramót því Kórea mun tefla þar fram einu sameiginlegu landsliði Suður og Norður Kóreu. Suður-Kóreu menn hafa verið með eitt besta landslið Asíu í marga áratugi en Norður-Kórea hefur aldrei komist á HM fyrr. HM í ár verður fyrsta handboltastórmótið þar sem öll Kórea teflir fram sameiginlegu handbolta landsliði í karlaflokki. Cho Young-shin, landsliðsþjálfari Kóreu, verður hinsvegar að velja að minnsta kosti fjóra leikmenn frá Norður Kóreu í hópinn sinn. Það verða því væntanlega sextán Suður-Kóreumenn í hópnum hans. Kóreumenn spila opnunarleik HM á móti gestgjöfum Þýskalands á fimmtudagskvöldið en sá leikur fer fram í Mercedes-Benz Arena í Berlín.
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Enski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira