Enginn einbeitingarskortur Kristinn Páll Teitsson skrifar 15. janúar 2019 10:00 Björgvin Páll Gústavsson fagnar í gær. Fréttablaðið/Getty
Ísland komst á blað með fyrsta sigri sínum á HM í gær þegar Strákarnir okkar unnu átján marka sigur á Barein, 36-18, í München. Hægt var að titla þennan leik sem skyldusigur á blaði ef Ísland ætlaði sér að komast í milliriðla og stóðst íslenska landsliðið allar kröfur og rúmlega það. Spilamennskan var góð á báðum endum vallarins gegn liði Barein sem stóð lengi vel í liði Makedóníu deginum áður. Íslenska liðið fékk stuttan undirbúningstíma eftir sjö marka tap gegn Spánverjum, eða um átján tíma, en fær nú tvo sólarhringa til að safna kröftum fyrir leik gegn lærisveinum Dags Sigurðssonar í Japan. Liðin skiptust á mörkum í upphafi fyrri hálfleiks þótt Ísland hafi alltaf verið með frumkvæðið. Íslenska liðinu gekk illa að hrista Barein af sér í byrjun leiks þrátt fyrir að markverðir Barein hafi ekki varið skot fyrr en undir lok hálfleiksins. Um miðjan fyrri hálfleik tókst Íslandi að slíta sig frá Barein og bæta við forskotið. Hægt og bítandi juku Strákarnir okkar forskotið og var ljóst í hvað stefndi þegar 20 mínútur voru til leiksloka eftir 11-2 kafla íslenska liðsins og munurinn var kominn upp í þrettán mörk. Það var ekkert hik á íslenska liðinu sem tók fótinn ekki af bensíngjöfinni og hélt áfram að bæta við forskotið allt þar til leikurinn var flautaður af. Stefán Árnason, álitsgjafi Fréttablaðsins, segist vera ánægður með að sjá íslenska liðið halda sífellt áfram og gefa Barein engin grið. „Spilamennskan var flott, það var greinilegt að liðið tók þennan leik mjög alvarlega og þeir gáfu allt í þetta frá fyrstu mínútu þar til að leikurinn kláraðist. Þeir gáfu tóninn snemma sóknarlega og leikurinn var í raun búinn frekar snemma. Getumunurinn á þessum liðum er mikill, sérstaklega þegar íslenska liðið mætir jafn einbeitt í leikinn og í gær og strákarnir völtuðu yfir þá snemma sem leiddi til þess að leikmenn Barein fóru að missa hausinn,“ segir Stefán og heldur áfram: „Lið undir stjórn Guðmundar eru ekkert að slaka á og taka alla leiki mjög alvarlega og það var greinilegt að yngri leikmenn liðsins voru æstir í að sanna sig. Það komu hungraðir leikmenn inn og það virtist sem svo að allir leikmennirnir ætluðu að sýna sig og sanna. Það er búið að dreifa álaginu vel í síðustu tveimur leikjum og allir sem koma inn eru klárir í slaginn. Það virðast margir vera tilbúnir að taka þátt í stórmótum. Þetta er mikilvægur liður í því að búa til landslið framtíðarinnar. Svo virðist vera sem Guðmundur sé að hugsa um þetta mót með framtíðina í huga, hvernig liðið verður á næstu stórmótum. Það er gott að vita til þess að leikmennirnir sem eru að koma inn séu reiðubúnir þrátt fyrir ungan aldur,“ segir Stefán sem hrósar sóknarleiknum. „Ég tók eftir því að það var betri taktur í sóknarleiknum, liðið gerði mun betur í yfirtölu. Ólíkt því sem var í fyrstu tveimur leikjunum enduðu flestar sóknir í yfirtölu með marki því að liðið var að dreifa boltanum betur. Skytturnar voru ógnandi og þegar færi gafst náði liðið að nýta hornin vel.“
Birtist í Fréttablaðinu HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Lebron talaði hreint út Körfubolti Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Enski boltinn Kristall fékk tveggja leikja bann Fótbolti Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Enski boltinn Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Handbolti Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ Fótbolti Elvar með sex mörk í toppslagnum Handbolti „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Fótbolti „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Fótbolti Olise reyndist hetja Frakka í Belgíu Fótbolti Fleiri fréttir Lebron talaði hreint út Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Kristall fékk tveggja leikja bann Ítalir völtuðu yfir Tyrki í Tyrklandi Olise reyndist hetja Frakka í Belgíu Elvar með sex mörk í toppslagnum Lið Viggós á hvínandi siglingu í Þýskalandi Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Megum ekki detta niður á þeirra plan „Eins og það væri verið að loka mig inni á heimavist“ Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins „Það hefur enginn áhuga á að hlusta á það“ Sjáðu fundinn: Arnar og Hákon sátu fyrir svörum í Lúxemborg Fyrirliði Ísraels: „Fengi langt bann ef ég segði skoðun mína“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Lélegur landsleikur, Írar öflugir og City í brasi Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Minden keypti Erling af ÍBV Má ekki mæta Íslandi eftir dóm fyrir heimilisofbeldi „Hluti af vegferðinni“ UEFA rannsakar ekki kynþáttaníð Ísraela Fagnar 19 ára afmæli með landsliðinu: „Hljóp til mömmu og lét hana vita“ HM-hetjan harmar frægðina: „Myndi frekar velja lífið sem ég átti áður“ Sjáðu vörslurnar: „Hákon var langbesti íslenski leikmaðurinn“ „Öll vandamál eins og kjúklingaskítur eftir þetta“ Segir Horner vera að trufla Ferrari Dagskráin í dag: Belgía tekur á móti stórliði Frakklands Fengu tvö rauð spjöld fyrir hártog á tuttugu mínútum Sjá meira