„Maður reynir að horfa í það jákvæða en maður verður kannski aðeins bara að melta þetta. Við eigum eftir að skoða leikinn aftur og þá kannski sér maður betur hvað fór úrskeiðis. Við getum alveg tekið fullt jákvætt út úr þessum fyrstu 50 mínútum en við verðum að sjá hvað við getum betur gert þegar líður á leikina,“ segir Bjarki Már.
Króatíska liðið sigldi fram úr undir lokin og kaffærði okkar piltum sem gerðu nokkru klaufaleg mistök. Bjarki hrósar króatíska liðinu í hástert og sérstaklega Luka Cindric sem fór illa með okkar menn.

Töffarar spila best
„Mér fannst miðjumaðurinn Cindric alveg ótrúlega góður. Hann er alltaf með fríkastið sama hvort hann geti svo spilað boltanum frá sér eða farið sjálfur í gegn. Því fengu þeir alltaf góða sénsa. Þess vegna náum við illa að loka vörninni og því fá þeir gott færi til þess að skora. Þegar að þú skorar svo ekki hinum megin þá eru þeir fljótir að refsa í bakið og þá hrynur fljótt undan þessu,“ segir Bjarki.Íslensku strákarnir áttu nokkur flott móment á móti Króatíu sem sýndi að þarna fara alvöru spaðar. Tæp en flott sending Ágústar Elí úr markinu á Bjarka sem greip boltann með annarri og skoraði var ein af þessum stundum. Bjarki elskar þetta.
„Eina leiðin til að spila handbolta að mínu mati er að vera töff. Maður spilar alltaf best þannig. Það sjá það líka allir á þessum ungu strákum að þeir eru töffarar. Þetta er eitthvað sem þú verður að hafa. Sjálfstraust og smá kokhreysti skilar þér lengra held ég á meðal margra svipaðra leikmanna. Það vantar ekkert í þetta lið okkar,“ segir hornamaðurinn.

Rússíbanareið
Bjarki brenndi tvívegis af í leiknum, þar á meðal úr dauðafæri úr hraðaupphlaupi. Mikið hefur verið gert úr fjarveru Guðjóns Vals og eilífri samkeppni Bjarka og Stefáns Rafns við landsliðsfyrirliðann en töldu því klikkin tvöfalt á móti Króatíu?„Ég pæli ekkert í þessu þannig lagað. Þetta er auðvitað búið að vera rússíbanareið fyrir mig. Ég fór úr því að vera í fríi á Íslandi í að hjálpa til í Noregi og nú að byrja fyrsta leik á HM. Ég var bara að reyna að einbeita mér að leiknum,“ segir Bjarki.
„Ég pældi ekkert í þessum hlutum. Maður er bara svekktur þegar að maður klikkar. Ég er alltaf svekktur þegar að ég klikka á færi. Það er ekkert bara ég heldur allir. Ég hugsa þá bara frekar um hvað ég get gert betur næst,“ segir Bjarki Már Elísson.
Allt viðtalið má sjá hér að neðan.