Juventus vann sinn átjánda sigur í ítölsku úrvalsdeildinni er liðið vann þægilegan 3-0 sigur á Chieivo á heimavelli í Tórínó í kvöld.
Það voru ekki liðnar nema þrettán mínútur er Douglas Costa skoraði fyrsta mark leiksins og Emre Can tvöfaldaði forystuna rétt fyrir hlé.
Staðan var 2-0 allt þangað til á 84. mínútu er varnarmaðurinn Daniele Rugani skoraði þriðja og síðasta mark leiksins. Öruggur 3-0 sigur meistaranna.
Juventus er á toppnum með 56 stig, níu stigum á undan Napoli sem er í öðru sætinu, en Chievo er á botninum með átta stig.
