Versta tap LeBron James á ferlinum | Myndband Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. febrúar 2019 07:30 LeBron James tapaði stórt í nótt með LA. vísir/getty
LeBron James og félagar í Los Angeles Lakers töpuðu stórt í nótt þegar að þeir heimsóttu Indiana Pacers í NBA-deildinni í körfubolta en heimamenn unnu með 42 stiga mun, 136-94. Þetta er versta tap LeBron á ferlinum en tvisvar sinnum áður hefur hann verið í liði sem tapar með 36 stigum. Mest var Indiana 46 stigum yfir en liðið setti upp skotsýningu fyrir utan þriggja stiga línuna. Indiana skoraði 19 þriggja stiga körfur sem er félagsmet en Bojan Bogdanovic skoraði fjóra þrista og var stigahæstur heimamanna með 24 stig. Myles Turner skoraði 22 en þrír varamenn Indiana skoruðu 17 stig hver.LeBron var stigahæstur í Lakers-liðinu með 18 stig auk þess sem að hann tók sjö fráköst og gaf níu stoðsendingar en LA er í tíunda sæti vestursins, þremur sigrum frá úrslitakeppninni eins og staðan er núna. „Þeir skoruðu 33 stig eftir að hirða boltann af okkur 19 sinnum og það var alveg frá byrjun leiksins. Við getum ekki verið í svona eltingarleik. Ég held að við höfum verið svolítið þreyttir eftir flugið,“ sagði svekktur LeBron James eftir leik. „Þetta er í fyrsta sinn á tímabilinu sem að við fljúgum svona þvert yfir landið en það breytir því ekki að við vorum ekki með rétt viðhorf í varnarleiknum og þeir refsuðu okkur fyrir það,“ sagði LeBron James.Úrslit næturinnar: Charlotte Hortnets - LA Clippers 115-117 Cleveland Cavaliers - Boston Celtics 96-103 Indiana Pacers - LA Lakers 136-94 NY Knicks - Detroit Pistons 92-105 Philadelphia 76ers - Toronto Raptors 107-119 Memphis Grizzlies - Minnesota Timberwolves 108-106 OKC Thunder - Orlando Magic 132-122 Portland Trail Blazers - Miami Heat 108-118
NBA Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal | Bikarinn sem beðið hefur verið eftir Fótbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira